Beint í efni

Önnur mál 2016

Málsnúmer 1602187

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

22. fundur

a) Kynning á starfsemifélagsmiðstöðva í Garðabæ. GR
b) Fundarmenn gengu um Garðalund.

Rætt var um hækkanir á æfingagjöldum íþróttafélaganna og hækkanir þeirra milli ára. Samþykkt var að fela íþróttafulltrúa að taka saman æfingagjöld í mismunandi íþróttagreinum innan íþróttafélaganna í Garðabæ. Miðað skal við kr. deilt í æfingastundir og þjálfarafjölda.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

21. fundur

a) ...
b) ...
c) ...

a) farið yfir starfsáætlun ÍTG 2016 - 2017.
b) lagt til að kannaður verði möguleiki á að stofna ferðasjóð fyrir annað tómstundastarf en landsliðsþátttöku.
c) farið yfir framkvæmdir við íþróttamannvirki bæjarins. Skipt er um gervigras á æfingavöllum við Ásgarð. Unnið er að stækkun æfingavallar austan aðalvallarins upp í löglega keppnisstærð. Sagt frá lagfæringum innandyra og utan í Mýrinni.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

20. fundur

a) ...
b) ...

a. Farið var yfir drög að dagskráratriðum 17. júníhátíðarhalda í Garðabæ sem eru í umsjá Vífils. Formaður ÍTG setur dagskrána og afhendir styrki úr 19. júnísjóði Garðabæjar.
b. Upplýst var að útboð er í gangi vegna endurbóta á yfirborði sparkvalla og æfingavallar 50x70m á Ásgarðssvæðinu. Einnig er í undirbúningi breytingar og lagfæring á æfingavelli austan Samsungvallar.
c. Formaður upplýsti um að unnið væri að gerð "apps" fyrir göngu- og hjólaleiðir auk söguslóða í bæjarlandinu.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

04

19. fundur

a) Leikfélaið Draumar kynna starfsemi sína.
b) Yfirlit sóða sem ÍTG vísar í til ráðstöfunar styrkja til íþróttamála.
c) Lokafundur ÍTG í vor dagsettur 17.maí kl. 17:00
d) .....

a) Torfi Geir Símonarson kynnti leikfélagið Draumar og starfsemi þess. Fram kom hve mikilvægt það er starfseminni að halda veittum stuðningi varðandi sumarstarfsmenn til að halda öllum námskeiðum gangandi og halda verðum í lágmarki.
b) Rætt var um að tengja vígslu nýs knattspyrnuvallar á Álftanesi viðburðum á afmælisári Garðabæjar.
c) Umræða varð um framkvæmdir við íþróttavallarsvæðið við Ásgarð og endurbætur á sundlauginni sem hefjast 1. júní.
d) Lokafundur ÍTG fyrir sumarfrí í vor er dagsettur 18. maí kl. 17:00 í golfskála GKG.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

05

18. fundur

Kynning á starfi skátafélagsins Vífils og ársreikningi félagsins 2015.

Kynning á starfi skátafélagsins Vífils og ársreikningi félagsins 2015.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

06

17. fundur

a. Kynning á Evrópumóti kvenna í golfi sem fram fer í sumar á Urriðaholtsvelli.
b. .....
c. .....

a. Kynning á Evrópumóti kvennaliða í golfi sem fram fer í sumar á Urriðaholtsvelli. Formaður og framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Odds kynntu starfsemi klúbbsins og fóru yfir umfang mótsins og óskir þeirra um stuðning Garðabæjar.
b. Samþykkt var að veita íþróttakarli og íþróttakonu Garðabæjar 2015 afreksstyrki að upphæð 200.000,- hvort.