15. fundur
15. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í íþróttamiðstöðinni Ásgarði
16.12.2015
Kl. 17:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Ásgrímur Gunnarsson - aðalmaður
- Tómas Björnsson - aðalmaður
- Hilmar Daði Bjarnason - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - varamaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 1511178
01
Íþróttakona og íþróttakarl Garðabæjar 2015
Val á tilnefningum til íþróttakonu og íþróttakarls Garðabæjar 2015
Átján ábendingar bárust til ÍTG um íþróttafólk í mismunandi íþróttagreinum sem skarað hefur fram úr á sínu sviði á árinu 2015.
ÍTG hefur valið fjóra karla og fjórar konur til að taka þátt í kjörinu að þessu sinni.
Tilnefndir til Íþróttakarls Garðabæjar 2015 eru:
F.ár Nafn Íþrótt Félag
76 Birgir Leifur Hafþórsson, golf, GKG
93 Dagfinnur Ari Normann, kraftlyftingar, Stjarnan
81 Justin Shouse, körfubolti, Stjarnan
65 Örn Valdimarsson, skotfimi, Skotfélag Reykjavíkur
Tilnefndar til Íþróttakonu Garðabæjar 2015 eru:
96 Andrea Sif Pétursdóttir, fimleikar, Stjarnan
87 Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, knattspyrna, Stjarnan
94 Freydís Halla Einarsóttir, skíði, Ármann
96 Lilja Lind Helgadóttir, ólympískar lyftingar, Lyftingafélag Garðabæjar
Kynning á íþróttafólkinu fer fram í Garðapóstinum 30. desember og á vefnum gardabaer.is. Almenningi verður boðið að taka þátt í vefkosningu frá 30. desember til 6. janúar en endanlegt val er í höndum fulltrúa ÍTG. Verðlaunahátíðin fer síðan fram í Ásgarði 10. janúar kl. 13:00
Málsnúmer 1512017
02
Ósk almenningsíþróttadeildar Stjörnunnar um aðstöðu innanhúss
Ósk um að leigja tíma í frjálsíþróttahöllinni í Kaplakrika janúar til mars 2016
Málinu vísað til íþróttafulltrúa til nánari skoðunar fram að næsta fundi.
Málsnúmer 1512066
03
Kvennahlaup ÍSÍ - samningur 2016
Ósk frá Stjörnunni um breytingu á samningi um greiðslur Garðabæjar vegna Kvennahlaupsins 2016.
Íþróttafulltrúa er falið að vinna að gerð samnings með Stjörnunni þannig að leggja megi tilbúinn samning fyrir næsta fund.
Málsnúmer 1511419
04
Kaldur pottur í Álftaneslaug
Ákveðið hefur verið að setja upp kaldan pott í Álftaneslaug. Málið kynnt.
Íþróttafulltrúi kynnti áform um að setja upp "ísbað" eða kaldann pott við Álftaneslaug. Samið hefur verið við plastverksmiðjuna Set á Selfossi um að útbúa baðið með sírennsli og yfirfallsrennu. Stefnt er að uppsetningu í janúar 2016.
Málsnúmer 1510164
05
Reglur um hvatapeninga 2016
Staðfesting á reglugerð um hvatapeninga 2016 liggur fyrir. Upphæðin er 30.000,- á hvert barn fædd á árunum 1998 til og með 2011.
Reglur um hvatapeninga 2016 samþykkt. Upphæðin er 30.000,- á hvert barn fædd á árunum 1998 til og með 2011.
Málsnúmer 1502323
06
Önnur mál ÍTG 2015
Næsti fundur ÍTG verður fimmtudaginn 7. janúar kl. 17:00.
Febrúarfundur ÍTG verður haldinn í húsnæði Vífils miðvikudaginn 10. febrúar kl. 17:00