Beint í efni

Íþróttakona og íþróttakarl Garðabæjar 2015

Málsnúmer 1511178

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

16. fundur

Val á íþróttakarli og íþróttakonu Garðabæjar.
Val á liði ársins í hópíþróttum.
Viðurkenning fyrir störf að íþrótta- og æskulýðsmálum.

Viðurkenning fyrir störf að íþrótta- og æskulýðsmálum.
Jóhann Steinar Ingimundarson störf fyrir Stjörnuna
Ágústa Jóhanna Jóhannesdóttir störf fyrir fimleikadeild Stjörnunnar
Hanna Lóa Friðjónsdóttir störf fyrir fimleikadeild Stjörnunnar
Ágúst Þorsteinsson störf fyrir skátahreyfinguna
Val á liði ársins, íþróttakarli Garðabæjar og íþróttakonu Garðabæjar verður lýst sunnudaginn 10.janúar kl. 13:00
Kosning um íþróttakarl og íþróttakonu fór fram á netinu og kusu 1099 manns. Niðurstaða var samhljóma með kosningu ÍTG.
Dagfinnur Ari Normann kraftlyftingamaður úr Stjörnunni er íþróttakarl Garðabæjar og Andrea Sif Pétursdóttir fimleikakona úr Stjörnunni var valin íþróttakona Garðabæjar.
Lið ársins er meistaraflokkur kvenna í hópfimleikum.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

15. fundur

Val á tilnefningum til íþróttakonu og íþróttakarls Garðabæjar 2015

Átján ábendingar bárust til ÍTG um íþróttafólk í mismunandi íþróttagreinum sem skarað hefur fram úr á sínu sviði á árinu 2015.
ÍTG hefur valið fjóra karla og fjórar konur til að taka þátt í kjörinu að þessu sinni.
Tilnefndir til Íþróttakarls Garðabæjar 2015 eru:
F.ár Nafn Íþrótt Félag
76 Birgir Leifur Hafþórsson, golf, GKG
93 Dagfinnur Ari Normann, kraftlyftingar, Stjarnan
81 Justin Shouse, körfubolti, Stjarnan
65 Örn Valdimarsson, skotfimi, Skotfélag Reykjavíkur
Tilnefndar til Íþróttakonu Garðabæjar 2015 eru:
96 Andrea Sif Pétursdóttir, fimleikar, Stjarnan
87 Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, knattspyrna, Stjarnan
94 Freydís Halla Einarsóttir, skíði, Ármann
96 Lilja Lind Helgadóttir, ólympískar lyftingar, Lyftingafélag Garðabæjar
Kynning á íþróttafólkinu fer fram í Garðapóstinum 30. desember og á vefnum gardabaer.is. Almenningi verður boðið að taka þátt í vefkosningu frá 30. desember til 6. janúar en endanlegt val er í höndum fulltrúa ÍTG. Verðlaunahátíðin fer síðan fram í Ásgarði 10. janúar kl. 13:00

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

14. fundur

Framkvæmd á vali á íþróttakarli og íþróttakonu Garðabæjar 2015 ásamt verðlaunahátíð 10. janúar 2016

Farið var yfir framkvæmd á vali á íþróttakarli og íþróttakonu Garðabæjar 2015 ásamt verðlaunahátíð 10. janúar 2016.