Beint í efni

16. fundur

07.01.2016
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

16. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í íþróttamiðstöðinni Ásgarði

07.01.2016

Kl. 17:00 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Ásgrímur Gunnarsson - aðalmaður
  • Tómas Björnsson - aðalmaður
  • Hildur Jakobína Gísladóttir - varamaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
  • Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 1511178

01

Íþróttakona og íþróttakarl Garðabæjar 2015

Val á íþróttakarli og íþróttakonu Garðabæjar.

Val á liði ársins í hópíþróttum.

Viðurkenning fyrir störf að íþrótta- og æskulýðsmálum.

Viðurkenning fyrir störf að íþrótta- og æskulýðsmálum.

Jóhann Steinar Ingimundarson störf fyrir Stjörnuna

Ágústa Jóhanna Jóhannesdóttir störf fyrir fimleikadeild Stjörnunnar

Hanna Lóa Friðjónsdóttir störf fyrir fimleikadeild Stjörnunnar

Ágúst Þorsteinsson störf fyrir skátahreyfinguna

Val á liði ársins, íþróttakarli Garðabæjar og íþróttakonu Garðabæjar verður lýst sunnudaginn 10.janúar kl. 13:00

Kosning um íþróttakarl og íþróttakonu fór fram á netinu og kusu 1099 manns. Niðurstaða var samhljóma með kosningu ÍTG.

Dagfinnur Ari Normann kraftlyftingamaður úr Stjörnunni er íþróttakarl Garðabæjar og Andrea Sif Pétursdóttir fimleikakona úr Stjörnunni var valin íþróttakona Garðabæjar.

Lið ársins er meistaraflokkur kvenna í hópfimleikum.

Málsnúmer 1512017

02

Ósk almenningsíþróttadeildar Stjörnunnar um aðstöðu innanhúss

Aðstaða keppnishóps vegna óvæntra útgjalda. Óskað er eftir stuðningi í eitt skipti.

ÍTG samþykkir að styrkja hlaupahóp Stjörnunnar vegna útgjalda við inniaðstöðu um 200.000,- kr.

Málsnúmer 1512066

03

Kvennahlaup ÍSÍ - samningur 2016

Drög að samkomulagi milli ÍSÍ og Stjörnunnar með fjárhagsstuðningi Garðabæjar til 2018.

Drögum að samningi vísað til bæjarráðs til endanlegrar samþykktar.