13. fundur
13. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í íþróttamiðstöðinni Ásgarði
14.10.2015
Kl. 17:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Hilmar Daði Bjarnason - aðalmaður
- Tómas Björnsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 1509358
01
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Kristín Valdís Örnólfsdóttir kt. 2607983249 Skautasamband Íslands, Kanada 13. júní til 3. júlí 2015
ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- vegna landsliðsverkefna til Kristínar Valdísar Örnólfsdóttur kt. 2607983249, Skautasamband Íslands, Kanada 13. júní til 3. júlí 2015
Málsnúmer 1509252
02
Endurskoðun reglugerða
Drög að endurskoðun hvatapeninga 2016
Fundarmenn voru sammála um að halda sig við núverandi reglugerð um íþróttamenn ársins án breytinga.
Lagt var til að skoðað væri við gerð fjárhagsáætlunar hvort möguleiki væri til hækkunar á upphæð til hvatapeninga 2016 frá því sem nú er.
Málsnúmer 1502323
03
Önnur mál ÍTG 2015
a.
b.
c.
Fram kom hjá formanni að verið væri að vinna úttekt af hálfu tæknisviðs bæjarins á sparkvöllum og æfingavöllum með gúmmíkurli. Einnig kom fram að KSÍ væri að fara yfir málið almennt þar sem fjöldi sparkvalla sem byggðir hafa verið að þeirra frumkvæði um allt land eru nú komnir að endurnýjun.