7. fundur
7. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í íþróttamiðstöðinni Ásgarði
18.02.2015
Kl. 17:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Ásgrímur Gunnarsson - aðalmaður
- Sigurður Bjarnason - aðalmaður
- Hilmar Daði Bjarnason - aðalmaður
- Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
- Guðrún Arna Kristjánsdóttir - varamaður
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
01
Klifið - kynning á starfsemi
Ásta Sölvadóttir og Ágústa Guðmundsdóttir kynntu starfsemi Klifsins og svöruðu spuningum nefndarmanna.
02
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Umsókn um afreksstyrk fyirr Irmu Gunnarsdóttur frjálsíþróttakonu úr Breiðblik
ÍTG samþykkir að veita Frjálsíþróttadeild Breiðabliks afreksstyrk að upphæð 85.000,- kr. vegna Irmu Gunnarsdóttur.
03
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Umsókn um afreksstyrk Freydís Halla Einarsdóttir skíðakona úr Ármanni
ÍTG samþykkir að veita Skíðadeild Ármanns afreksstyrk að upphæð 200.000,- kr. vegna Freydísar Höllu Einarsdóttur
04
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Umsókn um afreksstyrk Davíð Bjarni Björnsson badmintonmaður úr TBR
ÍTG hafnar umsókn TBR um afreksstyrk vegna Davíðs Bjarna Björnssonar.
05
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Umsókn um afreksstyrk Helga María Vilhjálmsdóttir skíðakona úr ÍR
ÍTG samþykkir að veita Skíðadeild ÍR afreksstyrk að upphæð 200.000,- kr. vegna Helgu Maríu Vilhjálmsdóttur.
06
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Umsókn um afreksstyrk stúlkur úr fimleikadeild Stjörnunnar
ÍTG veitir ekki afreksstyrki til einstakra hópa vegna landsliðsverkefna. Styrkirnir eru veittir til einstaklinga og félaga þeirra en ekki sérsambanda. Þessi umsókn er því ekki styrkhæf.
07
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Umsókn í afrekssjóð Aron Snær Júlíusson GKG
ÍTG hafnar umsókn GKG um afreksstyrk vegna Arons Snæs Júlíussonar.
08
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Umsókn í afrekssjóð Ragnar Már Garðarsson GKG
ÍTG samþykkir að veita GKG afreksstyrk að upphæð 85.000,- kr. vegna Ragnars Más Garðarssonar.
09
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Umsókn um ferðastyrk Benedikt Baldur Tryggvason A-landslið í blaki 1. janúar 2015 Novotel Cup í Lúxemborg
ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð 20.000,- kr. til Benedikts Baldurs Tryggvasonar, A-landslið í blaki 1. janúar 2015 Novotel Cup í Lúxemborg
10
Aðstaða í skólum
ÍTG hvetur til samstarfs milli skóla og íþróttafélaga um nýtingu húsnæðis í þágu starfseminnar eftir því sem möguleiki er á.
11
Heilsueflandi samfélag - þátttaka Garðabæjar
Rætt var um mikilvægi þess að taka tillit til lýðheilsusjónarmiða í daglegu starfi stofnana bæjarins sem og við gerð aðalskipulags bæjarins sem nú er í undirbúningi.
12
Endurnýjun samstarfssamnings
Komið er að endunýjun samnings milli Garðabæjar og Umf. Stjörnunnar
Kynnt voru samningsdrög við Stjörnuna og UMFÁ sem tilbúin eru til undirritunar.
13
Íbúakönnun 2014
Kynnt var niðurstaða íbúakönnunar. Athygli vekur að íbúar óska helst úrbóta í íþrótta- og tómstundamálum.
14
Önnur mál ÍTG 2015
a. Íþróttafulltrúa var falið að kanna kostnað við akstur Frísundabíls yfir sumarmánuðina með það fyrir augum að tengja íþróttasvæðin Breiðumýri, Ásgarð og GKG með viðkomu í skátaheimilunum hjá Svönum og Vífli.$line$b. Íþróttafulltrúa var falið að boða til fundar um samþættingu íþrótta- og tómstundastarfs yngstu iðkenda og skólastarfs. Að því máli þurfa að koma fulltrúar íþróttafélaga, skólastjórar grunnskólanna og yfirvöld menntamála í Garðabæ.