Endurnýjun samstarfssamnings
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
4. fundur
Bæjarstjórn samþykkir með níu atkvæðum (SÞ,ÁHJ,SHJ,SG,GVG,JS,GE,MG,SE) samstarfssamning Garðabæjar og Ungmennafélags Stjörnunnar. Tveir sitja hjá (GEH,HJJ).
Bæjarráð Garðabæjar
02
8 (1676). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
03
7. fundur
Komið er að endunýjun samnings milli Garðabæjar og Umf. Stjörnunnar
Kynnt voru samningsdrög við Stjörnuna og UMFÁ sem tilbúin eru til undirritunar.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
04
3. fundur
Komið er að endurnýjun samstarfssamnings við Stjörnuna.
SB lýsti sig vanhæfan til að taka ákvarðanir í þessu máli. Fjallað var um ágæta kynningu sem fram fór hjá Stjörnunni og fagnað þeim áherslum Stjörnunnar á að styrkja innra starf félagsins.
Bæjarráð Garðabæjar
05
39 (1659). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015 og til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs.