4. fundur
4. fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
05.03.2015
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sturla D Þorsteinsson - forseti bæjarstjórnar
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón E. Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður.
Sturla Þorsteinsson, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 19. febrúar 2015 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 24/2 ´15.
Til sérstakrar afgreiðslu:
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 6. tl., bréf Skátafélagsins varðandi staðsetningu útilífsmiðstöðvar skáta í Heiðmörk og spurði um stöðu mála.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi sama mál og gerði grein fyrir stöðu málsins.$line$$line$Fundargerðin sem er 13 tl. er samþykkt samhljóða.
1.11 - 1410428 - Samstarfssamningur Garðabæjar og Ungmennafélags Álftaness
Bæjarstjórn samþykkir samstarfssamning Garðabæjar og Ungmennafélags Álftaness.
Fylgiskjöl
1.12 - 1502336 - Samningur Garðabæjar og ungemnnafélags Stjörnunnar um rekstur valla
Bæjarstjórn samþykkir með níu atkvæðum (SÞ,ÁHJ,SHJ,SG,GVG,JS,GE,MG,SE) samning Garðabæjar og Ungmennafélags Stjörnunnar um rekstur valla. Tveir sitja hjá (GEH,HJJ).
Fylgiskjöl
1.13 - 1410107 - Samstarfssamningur Garðabæjar og Ungmennafélags Stjörnunnar
Bæjarstjórn samþykkir með níu atkvæðum (SÞ,ÁHJ,SHJ,SG,GVG,JS,GE,MG,SE) samstarfssamning Garðabæjar og Ungmennafélags Stjörnunnar. Tveir sitja hjá (GEH,HJJ).
Fylgiskjöl
1.9 - 1501052 - Reglur um þróunarsjóð leikskóla.
Bæjarstjórn samþykkir reglur um þróunarsjóð leikskóla en samkvæmt fjárhagsáætlun er fjárveiting til sjóðsins kr. 8.000.000.
Fylgiskjöl
02
Fundargerð bæjarráðs frá 3/3 ´15.
Til sérstakrar afgreiðslu:
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 10 tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag Kirkjubrúar.$line$$line$María Grétarsdóttir, ræddi 16. tl., svar við fyrirspurn MG um rekstur grunnskóla og lagði fram eftirfarandi bókun:$line$$line$"Í rekstri bæjarfélags er mikilvægt að gætt sé jafnræðis við niðurgreiðslu á þjónustu til einstakra hópa. Þannig verður að tryggja jafnræðissjónarmið að baki frjálsu vali um grunnskóla, að bæjarreknir jafnt sem einkareknir leik- og grunnskólar búi við samskonar rekstrarskilyrði.$line$Í samningi Garðabæjar við Barnaskóla Hjallastefnunnar og Vífilsskóla kemur fram að fyrir hvert barn skuli Garðabær greiða sem nemur 100% framlagi samkvæmt útreikningi Hagstofu Íslands, sbr. 56. gr. grunnskólalaga, en þó aldrei hærra framlag en meðaltal heildarrekstrarkostnaðar grunnskóla Garðabæjar. Alþjóðaskólinn fær sem nemur 75% framlagi samkvæmt útreikningi Hagstofunnar.$line$Meðaltal kennslukostnaðar bæjarskólanna (nettó rekstrargjöld án húsnæðiskostnaðar) Flataskóla, Sjálandsskóla, Hofsstaðaskóla og Álftanesskóla er samkvæmt framlögðum gögnum frá Garðabæ um 856 þúsund krónur á barn á ári á árinu 2013. Meðaltal kennslukostnaðar Barnaskóla Hjallastefnunnar og Vífilsskóla er um 1.271 þúsund krónur og meðaltal kennslukostnaðar Alþjóðaskólans er 1.109 þúsund krónur á barn á árinu 2013. $line$Ef Barnaskóli Hjallastefnunnar og Vífilsskóli væru að fá sama meðaltal á barn og bæjarskólarnir framangreindu í Garðabæ þá væru þeir að fá um 122 milljónum króna lægri greiðslur árlega frá Garðabæ en raunin er á árinu 2013. Ef Alþjóðaskólinn væri að fá sama meðaltal frá Garðabæ og bæjarskólarnir þá væri hann að fá rúmum 9 milljónum krónum minna árlega en á árinu 2013. Ef bæjarskólarnir framangreindu (án Garðaskóla) væru að fá sömu framlög og Barnaskóli Hjallastefnunnar og Vífilsskóli þá væru þeir að fá um 590 milljónum króna meira árlega en á árinu 2013.$line$Fólkið í bænum lagði fram tillögu um leiðréttingu á þessu ójafnræði í bæjarstjórn í desember 2013 en henni var hafnað. Óskað er eftir svörum frá bæjaryfirvöldum varðandi með hvaða hætti þau munu bregðast við þessu ójafnræði á fjárveitingum til grunnskólanna í Garðabæ."$line$$line$$line$Steinþór Einarsson, ræddi 18. tl., greinargerð ráðgjafa aðalskipulags um staðarval fjölnota íþróttahúss og lagði fram eftirfarandi bókun:$line$$line$"Í greinargerð ráðgjafa aðalskipulags um staðarval fjölnota íþróttahúss kemur skýrt fram að stórt hús, sem er krafa Stjörnunnar, kemst ekki með góðu móti fyrir nema í Vetrarmýri. Á kynningarfundi sem á að halda með íbúum Garðabæjar er nauðsynlegt að allar upplýsingar liggi fyrir varðandi stórt hús, svo sem byggingarkostnaður, rekstrarkostnaður og fórnarkostnaður verði Ásgarðssvæðið fyrir valinu."$line$$line$Sigurður Guðmundsson, ræddi 5. tl., bréf ÞH varðandi háa jaðarskatta vegna ákvæða um fasteignagjöld, 10 tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag Kirkjubrúar og 18. tl., greinargerð ráðgjafa aðalskipulags um staðarval fjölnota íþróttahúss.$line$$line$María Grétarsdóttir, ræddi 18. tl., greinargerð ráðgjafa aðalskipulags um staðarval fjölnota íþróttahúss og lagði fram eftirfarandi bókun:$line$$line$"Fólkið í bænum hefur stutt byggingu fjölnota íþróttahúss (ekki í fullri stærð) á Ásgarðssvæði við Hafnarfjarðarveg en þann möguleika er ekki að finna í framlagðri greinargerð ráðgjafa aðalskipulags. Mikilvægt er að metnir verði kostir og gallar þess hvort ráðist verði í byggingu fjölnota íþróttahúss í fullri stærð eða ekki auk þess sem metnir verði kostir og gallar með tilliti til staðsetningar hússins, kostnaðar og nýtingarmöguleika."$line$$line$Gunnar Valur Gíslason, ræddi 6. tl., starfsáætlanir sviða bæjarskrifstofa árið 2015 og þakkaði sviðsstjórum fyrir vel unnar og skýrar áætlanir um stafsemina á árinu. Þá ræddi Gunnar Valur 10 tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag Kirkjubrúar og 18. tl., greinargerð ráðgjafa aðalskipulags um staðarval fjölnota íþróttahúss.$line$$line$Fundargerðin sem er 18 tl. er samþykkt samhljóða.
2.10 - 1302203 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag vegna Kirkjubrúar 1, dags. 20.02.15.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar deiliskipulag fyrir íbúðabyggð í landi Kirkjubrúar samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
- Kirkjubrú 1, dsk tillaga uppdráttur forkynning nóv 13.pdf
- Kirkjubrú 1, dsk tillaga skýringamynd forkynning.pdf
- Kirkjubrú 1, dsk tillaga greinargerð forkynning.pdf
- Kirkjubrú minnisblað.pdf
- Tillaga 1 02-2015-Ný aðkoma 12 feb-000.pdf
- Fellt inn í gildandi aðalskipulag-000.pdf
- Skipulagsnefnd Garðabæjar - 2 (20.2.2015).pdf
2.11 - 1412278 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi að Furulundi 6, dags. 20.02.15.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að falla frá grenndarkynningu samkvæmt 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna útgáfu á byggingarleyfi fyrir framkvæmdum við Furulund 6, sbr. 1. mgr. sömu greinar, enda verður ekki talið að framkvæmdin geti varðað hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda
Fylgiskjöl
2.12 - 1502335 - Umsókn um byggingarleyfi - Golfklúbbur GKG, dags. 26.02.15.
Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum (SÞ,ÁHJ,SHJ,SG,GVG,JS,GE,SE) afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita leyfi fyrir bráðabirgðahúsi á byggingartíma félags- og íþróttaaðstöðu GKG. þrír sitja hjá (MG,GEH,HJJ).
Fylgiskjöl
2.14 - 1502408 - Umsókn um byggingarleyfi - Sunnuflöt 1, dags. 26.02.15.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita leyfi fyrir viðbyggingu og breytingum á eldra húsi að Sunnuflöt 1.
Fylgiskjöl
2.15 - 1501353 - Umsókn um byggingarleyfi - Tjaldanes 17, dags. 25.02.15.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita leyfi fyrir viðbyggingu og breytingum á eldra húsi að Tjaldanesi 17.
Fylgiskjöl
2.7 - 1502343 - Bréf Sævars Þórs Jónssonar, hdl., varðandi sölutilboð húsnæðis að Goðatúni 34, dags. 06.02.15.
Bæjarstjórn samþykkir með vísan til niðurstöðu dóms Hæstaréttar í máli húseigenda Goðatúns 34 gegn Garðabæ að hafna sölutilboði hans að fjárhæð kr. 47.000.000. María Grétarsdóttir situr hjá.
Fylgiskjöl
2.9 - 1501562 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi uppsetning á skáp fyrir ljósleiðara og röralögn við Holtsveg 21, dags. 20.02.15.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að heimila útgáfu byggingarleyfis vegna uppsetningu skáps o.fl. við Holtsveg á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulaglaga nr. 123/2010, þar sem um óverulegt frávik frá deiliskipulagi er að ræða.
Fylgiskjöl
04
Fundargerð leikskólanefndar frá 16/2 ´15.
Sigurður Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og ræddi 8. tl., kynningar og önnur mál og vék sérstaklega að kostum miðlægs biðlista fyrir leikskóla.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.
05
Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 18/2 ´15.
Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., fyrirspurn um stöðu innflytjenda.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.
06
Fundargerð skipulagsnefndar frá 20/2 ´15.
María Grétarsdóttir, ræddi 5. tl., lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog og spurði hvenær fyrirhugað sé að auglýsa lóðina.$line$$line$Sigurður Guðmundsson ræddi 1. tl., almenningssamgöngur og kynningu Jóhönnu Helgadóttur um niðurstöður í lokaritgerð við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík varðandi samgöngumiðað skipulag sem hann kvað hafa verið mjög áhugaverða. Þá ræddi Sigurður 2. tl.. endurskoðun aðalskipulag og benti á að lagðar hafa verið fram ábendingar og umsagnir sem borist hafa vegna lýsingar verkefnisins.$line$$line$María Grétarsdóttir ræddi 1. tl., almenningssamgöngur og spurði um aðgengi að kynningum sem eru til umfjöllunar á fundum nefnda.$line$$line$Sigurður Guðmundsson, ræddi sama mál.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 5. tl., og svaraði fyrirspurn varðandi lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.
07
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 20/2 ´15.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., samstarf SSH um símenntun grunnskólakennara og greindi frá að í þessu sambandi hafi verið um að ræða fræðslu um hvernig mæta eigi þörfum bráðgerra barna í grunnskólum.$line$$line$Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., skóladagatal og skipulag á vetrafríum.$line$$line$Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi sama mál.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.
12
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 19/2 ´15.
Sigurður Guðmundsson, ræddi eftirlit með mengun í lækjum bæjarins og í strandsjó við Arnarnesvog og á Álftanesi.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.
13
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 27/2 ´15.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., ársreikningur 2014 og gerði grein fyrir helstu lykiltölum. Þá ræddi Gunnar Valur 3. tl., stöðu dómsmála, 4. tl., borgarlínu 2030 og 7. tl., akstursþjónusta fyrir fatlað fólk.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.
14
Lántaka samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2015.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku að fjárhæð kr. 330.000.000 samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir 2015. Bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi tillögu.$line$$line$$line$"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að taka tilboði í lántöku að fjárhæð 330.000.000 króna að nafnvirði bréfsins á 3,04% ávöxtunarkröfu sem jafngildir markaðsvirði að fjárhæð 284.525.997 krónum.$line$Bæjarstjórn samþykkir fara þess á leit að að skuldabréfaflokkur með auðkenninu GARD 13 1 og ISIN nr. IS0000022689 verði aukinn um kr. 330.000.000 þ.e. um samsvarandi fjölda eininga en nafnverðseining er kr. 1. Vísað er til heimildar í útgáfusamningi, dags. 8. janúar 2013. Einnig er vísað til útgáfulýsingar dags. 8. janúar 2013. Áður hafa verið gefnar út kr. 1.437.000.000 og verður flokkurinn því að fjárhæð kr. 1.767.000.000 eftir hækkunina. Skuldabréfaflokkur þessi er þegar skráður á NASDAQ OMX (Kauphöll Íslands).$line$Lántakan er samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun Garðabæjar 2015 (2016-2018) sem samþykkt var í bæjarstjórn 4. desember 2014."$line$$line$Tillagan samþykkt með tíu atkvæðum. María Grétarsdóttir situr hjá.