Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 3/3 ´15.

Málsnúmer 1502033F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

4. fundur

Til sérstakrar afgreiðslu:

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 10 tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag Kirkjubrúar.$line$$line$María Grétarsdóttir, ræddi 16. tl., svar við fyrirspurn MG um rekstur grunnskóla og lagði fram eftirfarandi bókun:$line$$line$"Í rekstri bæjarfélags er mikilvægt að gætt sé jafnræðis við niðurgreiðslu á þjónustu til einstakra hópa. Þannig verður að tryggja jafnræðissjónarmið að baki frjálsu vali um grunnskóla, að bæjarreknir jafnt sem einkareknir leik- og grunnskólar búi við samskonar rekstrarskilyrði.$line$Í samningi Garðabæjar við Barnaskóla Hjallastefnunnar og Vífilsskóla kemur fram að fyrir hvert barn skuli Garðabær greiða sem nemur 100% framlagi samkvæmt útreikningi Hagstofu Íslands, sbr. 56. gr. grunnskólalaga, en þó aldrei hærra framlag en meðaltal heildarrekstrarkostnaðar grunnskóla Garðabæjar. Alþjóðaskólinn fær sem nemur 75% framlagi samkvæmt útreikningi Hagstofunnar.$line$Meðaltal kennslukostnaðar bæjarskólanna (nettó rekstrargjöld án húsnæðiskostnaðar) Flataskóla, Sjálandsskóla, Hofsstaðaskóla og Álftanesskóla er samkvæmt framlögðum gögnum frá Garðabæ um 856 þúsund krónur á barn á ári á árinu 2013. Meðaltal kennslukostnaðar Barnaskóla Hjallastefnunnar og Vífilsskóla er um 1.271 þúsund krónur og meðaltal kennslukostnaðar Alþjóðaskólans er 1.109 þúsund krónur á barn á árinu 2013. $line$Ef Barnaskóli Hjallastefnunnar og Vífilsskóli væru að fá sama meðaltal á barn og bæjarskólarnir framangreindu í Garðabæ þá væru þeir að fá um 122 milljónum króna lægri greiðslur árlega frá Garðabæ en raunin er á árinu 2013. Ef Alþjóðaskólinn væri að fá sama meðaltal frá Garðabæ og bæjarskólarnir þá væri hann að fá rúmum 9 milljónum krónum minna árlega en á árinu 2013. Ef bæjarskólarnir framangreindu (án Garðaskóla) væru að fá sömu framlög og Barnaskóli Hjallastefnunnar og Vífilsskóli þá væru þeir að fá um 590 milljónum króna meira árlega en á árinu 2013.$line$Fólkið í bænum lagði fram tillögu um leiðréttingu á þessu ójafnræði í bæjarstjórn í desember 2013 en henni var hafnað. Óskað er eftir svörum frá bæjaryfirvöldum varðandi með hvaða hætti þau munu bregðast við þessu ójafnræði á fjárveitingum til grunnskólanna í Garðabæ."$line$$line$$line$Steinþór Einarsson, ræddi 18. tl., greinargerð ráðgjafa aðalskipulags um staðarval fjölnota íþróttahúss og lagði fram eftirfarandi bókun:$line$$line$"Í greinargerð ráðgjafa aðalskipulags um staðarval fjölnota íþróttahúss kemur skýrt fram að stórt hús, sem er krafa Stjörnunnar, kemst ekki með góðu móti fyrir nema í Vetrarmýri. Á kynningarfundi sem á að halda með íbúum Garðabæjar er nauðsynlegt að allar upplýsingar liggi fyrir varðandi stórt hús, svo sem byggingarkostnaður, rekstrarkostnaður og fórnarkostnaður verði Ásgarðssvæðið fyrir valinu."$line$$line$Sigurður Guðmundsson, ræddi 5. tl., bréf ÞH varðandi háa jaðarskatta vegna ákvæða um fasteignagjöld, 10 tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag Kirkjubrúar og 18. tl., greinargerð ráðgjafa aðalskipulags um staðarval fjölnota íþróttahúss.$line$$line$María Grétarsdóttir, ræddi 18. tl., greinargerð ráðgjafa aðalskipulags um staðarval fjölnota íþróttahúss og lagði fram eftirfarandi bókun:$line$$line$"Fólkið í bænum hefur stutt byggingu fjölnota íþróttahúss (ekki í fullri stærð) á Ásgarðssvæði við Hafnarfjarðarveg en þann möguleika er ekki að finna í framlagðri greinargerð ráðgjafa aðalskipulags. Mikilvægt er að metnir verði kostir og gallar þess hvort ráðist verði í byggingu fjölnota íþróttahúss í fullri stærð eða ekki auk þess sem metnir verði kostir og gallar með tilliti til staðsetningar hússins, kostnaðar og nýtingarmöguleika."$line$$line$Gunnar Valur Gíslason, ræddi 6. tl., starfsáætlanir sviða bæjarskrifstofa árið 2015 og þakkaði sviðsstjórum fyrir vel unnar og skýrar áætlanir um stafsemina á árinu. Þá ræddi Gunnar Valur 10 tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag Kirkjubrúar og 18. tl., greinargerð ráðgjafa aðalskipulags um staðarval fjölnota íþróttahúss.$line$$line$Fundargerðin sem er 18 tl. er samþykkt samhljóða.