8 (1676). fundur
8 (1676). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
24.02.2015
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Almenn framlög vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2015
Lagt fram yfirlit frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga um almenn framlög vegna málefna fatlaðs fólks árið 2015.
02
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um farmflutninga á landi, 503. mál, dags. 19.02.15.
Lagt fram.
03
Bréf nefndarsviðs alþingis varðandi frumvarp til laga um farþegaflutninga á landi í atvinnuskyni, 504. mál, dags. 19.02.15.
Lagt fram.
04
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um orlof húsmæðra, 339. mál, dags. 20.01.15.
Lagt fram.
05
Bréf Nordjobb á Íslandi varðandi sumarstörf 2015, dags. 11.02.15.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
06
Bréf Skátafélagsins Vífils varðandi staðsetning útilífsmiðstöðvar skáta í Heiðmörk, dags. 19.02.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til meðferðar skipulagsnefndar vegna vinnu við afgreiðslu á tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur.
07
Bréf Brunabótafélags Íslands varðandi styrktarsjóð EBÍ 2015, dags. 12.02.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til fræðslu- og menningarsviðs.
08
Bréf Bjartrar framtíðar varðandi tillögu um verklag við kosningar í nefndir, dags. 19.02.15.
Bæjarráð samþykkir að almennt verði það verklag haft til leiðbeiningar, sé þess kostur, að við kosningar í nefndir á vegum bæjarstjórnar liggi fyrir með fyrirvara upplýsingar um tilnefningar á fulltrúum sem eru í kjöri.
09
Reglur um þróunarsjóð leikskóla.
Bæjarráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
11
Samstarfssamningur Garðabæjar og Ungmennafélags Álftaness
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.
12
Samningur Garðabæjar og ungemnnafélags Stjörnunnar um rekstur valla
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.
13
Samstarfssamningur Garðabæjar og Ungmennafélags Stjörnunnar
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.