Þróunarsjóður leikskóla 2015
Ferill máls
Leikskólanefnd Garðabæjar
01
21. fundur
Lokaskýrslur þróunarverkefna lagðar fram. Leikskólanefnd fagnar áhrifum þróunarsjóðs á leikskólastarf í Garðabæ.
Leikskólanefnd Garðabæjar
02
12. fundur
Seinni úthlutun þróunarsjóðs 2015 - áhersluþættir
Seinni úthlutun úr þróunarsjóði leikskóla fer fram að hausti. Þá eru til úthlutunar 20% sjóðsins. Ákveðið að styðjast við sömu áhersluþætti og voru í fyrri úthlutun og að auglýsa eftir umsóknum um mánaðarmótin ágúst/september.
Leikskólanefnd Garðabæjar
03
8. fundur
Drög að samningi.
Farið yfir drög að samningi og þau samþykkt. Matsferlið rætt, en kjörnir fulltrúar ásamt fulltrúa foreldra fá umsóknirnar til yfirferðar uppúr mánaðarmótum og funda um málið þann 13. apríl.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
4. fundur
Bæjarstjórn samþykkir reglur um þróunarsjóð leikskóla en samkvæmt fjárhagsáætlun er fjárveiting til sjóðsins kr. 8.000.000.
Bæjarráð Garðabæjar
05
8 (1676). fundur
Bæjarráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Leikskólanefnd Garðabæjar
06
7. fundur
Farið yfir reglur um þróunarsjóð leikskóla og ákveðið að hann verði opinn öllum leikskólum í Garðabæ. Ákveðið að áherslur ársins verði: Hreyfing og velferð, lýðræði og mannréttindi, samskipta og félagsfærni, sjálfbærni. Einnig verði þættirnir málörvun og læsi og samvinna innan og á milli skóla og skólastiga sameiginlegir áhersluþættir leik- og grunnskóla. Farið var yfir umsóknareyðublað og viðmið í mati á umsóknum. Ákveðið að auglýsa eftir umsóknum þegar bæjarráð hefur samþykkt reglurnar.
Leikskólanefnd Garðabæjar
07
6. fundur
Drög að úthlutunarreglum úr þróunarsjóði leikskóla
Farið yfir drög að úthlutunarreglum fyrir þróunarsjóð leikskóla. Rætt um hvort sjálfstæðir leikskólar ættu að hafa aðgang að sjóðnum þar sem gert sé ráð fyrir skólaþróun í framlagi til þeirra. Tilgangur sjóðsins væri að efla bæjarrekna leikskóla í þróun starfs síns.