Beint í efni

8. fundur

16.03.2015
Leikskólanefnd Garðabæjar

8. fundur

Leikskólanefnd Garðabæjar

í Garðabæ

16.03.2015

Kl. 17:00 - 17:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Viktoría Jensdóttir - formaður
  • Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
  • Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir - aðalmaður
  • Snævar Sigurðsson - aðalmaður
  • Eymundur Sveinn Einarsson - aðalmaður
  • Anna Magnea Hreinsdóttir - leikskólafulltrúi
  • Ída Björg Unnarsdóttir - fulltrúi starfsmanna

Ritari

  • Anna Magnea Hreinsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1502261

01

Skóladagatal 2015-2016

Leikskóladagatal fyrir veturinn 2015 - 2016.

Leikskóladagatal fyrir veturinn 2015-2016 lagt fram. Umsagnir foreldraráða berast á næsta fund. Nefndarmenn telja heppilegt að skipulagsdagar leikskóla liggi að helgi og fagnar því að skóladagatalið sé samræmt grunnskóladagatali.

Málsnúmer 1501052

02

Þróunarsjóður leikskóla

Drög að samningi.

Farið yfir drög að samningi og þau samþykkt. Matsferlið rætt, en kjörnir fulltrúar ásamt fulltrúa foreldra fá umsóknirnar til yfirferðar uppúr mánaðarmótum og funda um málið þann 13. apríl.

Málsnúmer 1502355

03

Skilyrði starfsleyfis dagforeldra

Tillaga að skilyrðum fyrir veitingu starfsleyfis til dagforeldra í Garðabæ

Farið yfir þau skilyrði sem sett eru fyrir veitingu starfsleyfis til dagforeldra í Garðabæ. Þau byggja á reglugerð um dagvistun barna í heimahúsi nr 907/2005. Ákveðið að birta skilyrðin á heimasíðu Garðabæjar.

Málsnúmer 1502374

04

Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi

Umsókn um byrjendaleyfi

Kristín Jóna Kristjónsdóttir kt. 250983-3879 fær leyfi til gæslu fjögurra barna í eitt ár með fyrirvara um að öll gögn berist.

Málsnúmer 1502175

05

Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi

Umsókn um byrjendaleyfi

Erla Dögg Héðinsdóttir kt. 180390-2359 fær leyfi til gæslu fjögurra barna í eitt ár með fyrirvara um að öll gögn berist.

Málsnúmer 1502174

06

Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi

Umsókn um byrjendaleyfi.

Hera Dögg Hjartardóttir kt. 130490-2129 fær leyfi til gæslu fjögurra barna í eitt ár með fyrirvara um að öll gögn berist.

Málsnúmer 1501092

07

Kynningar og önnur mál 2015

a) Rætt um í hverju munur á dvalarkostnaði v. barns hjá dagforeldrum á ungbarnaleikskóla liggur. Leikskólafulltrúa falið að taka saman kostnað fyrir næsta fund.$line$b) Rætt um hvort ekki sé sama þjónusta fyrir börn með málþroskavanda í öllum leikskólum í Garðabæ, þar með talið leikskóladeild Flataskóla. Leikskólafulltrúi telur svo vera.$line$c) Rætt um að nokkrir leikskólar í Garðabæ selja 15 mínútna dvalartíma, en á gjaldskrá leikskóla er einungis að finna hálftíma gjald. Vilja nefndarmenn skoða hvort hægt sé að samræma gjaldskrá allra leikskóla í Garðabæ.$line$d) Rætt um greiðslur í foreldrasjóð, innheimtu og umsýslu Garðabæjar fyrir foreldrafélögin.$line$e) Marta Sigurðardóttir leikskólastjóri Kirkjubóls gekk með nefndarmönnum um leikskólann og kynnti starfsemi hans. Einkunnarorð skólans, sem er á sínu þrítugasta starfsári eru virðing, vinátta og væntumþykja. Leikskólinn starfar eftir fjölgreindarkenningu Gardners og leggur einnig áherslu á umhverfismennt.