Skóladagatal 2015-2016
Ferill máls
Leikskólanefnd Garðabæjar
01
13. fundur
Beiðni um flutning á skipulagsdegi
Lundaból óskar eftir flutningi á starfsdegi vorið 2016 vegna námsferðar starfsfólks. Nefndin samþykkir flutninginn með því skilyrði að foreldraráð hafi víðtækt samráð við foreldra t.d. með tölvupósti.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
02
12. fundur
Alþjóðaskólinn óskar eftir að færa til skipulagsdag vegna alþjóðlegrar úttektar á starfsemi skólans.
Skólanefnd fagnar því að gerð sé alþjóðleg úttekt á starfssemi skólans og samþykkir vegna sérstakra aðstæðna tilfærslu á starfsdegi. Farið er fram á að þeim nemendum sem þess óska sé tryggð viðvera í skipulögðu starfi á vegum skólans þennan dag.
Leikskólanefnd Garðabæjar
03
10. fundur
Umsagnir foreldraráða og beiðni um flutning á skipulagsdegi.
Farið yfir umsagnir foreldraráða með leikskóladagatali veturinn 2015 - 2016. Athugasemdir bárust frá foreldraráði tveggja leikskóla um skipulagsdag sem er á miðvikudegi í október.$line$Benda þau á að betra sé að skipulagsdagar liggi að helgum.$line$Beiðni barst frá leikskólanum Sjálandi um flutning á einum skipulagsdegi vegna skoðunarferðar starfsmannahópsins erlendis. Jákvæð umsögn foreldraráðs fylgir beiðninni.$line$Einnig barst beiðni frá leikskólanum Sunnuhvoli um flutning á einum skipulagsdegi vegna skoðunarferðar starfsmannahópsins erlendis. Jákvæð umsögn foreldraráðs fylgir.$line$Leikskólanefnd samþykkir dagatalið.$line$Beiðnir leikskólanna einnig samþykktar en leikskólastjórum bent á að hafa víðtækt samráð við foreldra.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
04
8. fundur
Skólastjóri fór yfir drög að skóladagatali 2015-2016 og helstu dagsetningar. Fram koma að tónlistarskólinn verður settur 26. ágúst og skólaslit verða 27. maí 2016. Jóla- og páskafrí ásamt vetrarfríi eru samræmd skóladagatali grunnskólanna en vetrarfrí er vikuna 15. - 19. febrúar. $line$Skólanefndin samþykkir skóladagatalið fyrir sitt leiti.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
05
11. fundur
Skólanefnd samþykkir dagatalið með fyrirvara um samþykki skólaráða allra grunnskólanna í bænum.
Leikskólanefnd Garðabæjar
06
8. fundur
Leikskóladagatal fyrir veturinn 2015 - 2016.
Leikskóladagatal fyrir veturinn 2015-2016 lagt fram. Umsagnir foreldraráða berast á næsta fund. Nefndarmenn telja heppilegt að skipulagsdagar leikskóla liggi að helgi og fagnar því að skóladagatalið sé samræmt grunnskóladagatali.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
07
7. fundur
Skólastjóri fór yfir drög að skóladagatali 2015-2016 og helstu dagsetningar. Fram kom að tónlistarskólinn verður settur 27. ágúst og skólaslit verða 27. maí 2016. Jóla- og páskafrí ásamt vetrarfríi verða samræmd skóladagatali grunnskólanna.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
08
9. fundur
Skóladagatal 2015 - 2016 lagt fyrir skólanefnd
Skólanefnd telur rétt að taka tillit til þeirra athugasemda sem fram hafa komið frá skólaráðum tveggja skóla. Skólastjórnendur eru því beðnir að færa vetrarfríið til þannig að það sé ekki í sömu viku og öskudagur.