12. fundur
12. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
21.04.2015
Kl. 17:00 - 19:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Hlíf Böðvarsdóttir - aðalmaður
- Sveinbjörn M Njálsson - fulltrúi skólastjóra
- Bryndís Stefánsdóttir - fulltrúi kennara
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
- Berglind Guðrún Bragadóttir - fulltrúi foreldra
- Steinunn Jóhanna Bergmann - varamaður
Ritari
- Katrín Friðriksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1504159
01
Aðgengi að skólum, öryggi og merkingar í grennd við grunnskóla.
Eysteinn Haraldsson bæjarverkfræðingur kemur fer yfir aðgengi að skólum, umferðar og öryggismál í grennd við grunnskólana í Garðabæ.
Eysteinn Haraldsson bæjarverkfræðingur fór yfir aðgengi að skólum, umferðar og öryggismál í grennd við grunnskólana í Garðabæ. Skólanefnd lýsir yfir ánægju með kynninguna og leggur áherslu á að tryggja í hvívetna öryggi í aðkomu og umhverfi grunnskóla bæjarins sem og að merkingar skólanna og aðkoma sé skýr s.s. aðalinngangur.
Málsnúmer 1504161
02
Aðgerðir til að efla læsi í grunnskólum Garðabæjar
Hvað getum við gert til að efla læsi? Samvinna milli skóla/skólastiga og samvinna skóla og foreldra.
Leggja þarf áherslu á samvinnu skólastiga (leik- og grunnskóla) og einnig samvinnu grunnskóla á þessu sviði. Nauðsynlegt er að skólar hafi skilgreinda verkferla um samvinnu við foreldra í lestrarkennslunni og bjóði foreldrum nemenda með sértæka lestrarefiðleika upp á faglega aðstoð og tryggi samvinnu við þá um lestrarnám barnsins. Skólanefnd felur fræðslu og menningarsviði að kalla eftir lestrarstefnum skólanna og viðbrögðum/aðgerðum varðandi nemendur sem eru samkvæmt skimunum líklegir til að lenda í erfiðleikum með lestrarnámið.
Málsnúmer 1504160
03
Tölvur, tæknimál og kennsluhættir í grunnskólum Garðabæjar
Skólanefnd felur fræðslu og menningarsviði að kalla eftir upplýsingum frá skólunum um hvernig upplýsingatæknikennslu er háttað og hver er þeirra framtíðarsýn þar.
Málsnúmer 1502247
04
100 ára afmæli kosningaréttar kvenna 2015
Skólanefnd felur fræðslu og menningarsviði að hvetja skólasjórnendur til að tengja 100 ára afmæli kosningarréttar kvenna inn í kennsluna m.a. í tengslum við faglega umræðu um jafnréttismál og samfélagsþróun.
Málsnúmer 1502261
05
Skóladagatal 2015-2016
Alþjóðaskólinn óskar eftir að færa til skipulagsdag vegna alþjóðlegrar úttektar á starfsemi skólans.
Skólanefnd fagnar því að gerð sé alþjóðleg úttekt á starfssemi skólans og samþykkir vegna sérstakra aðstæðna tilfærslu á starfsdegi. Farið er fram á að þeim nemendum sem þess óska sé tryggð viðvera í skipulögðu starfi á vegum skólans þennan dag.