Beint í efni

9. fundur

20.02.2015
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

9. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í Álftanesskóla

20.02.2015

Kl. 08:15 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Kjartan Örn Sigurðsson - aðalmaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
  • Guðrún Arna Kristjánsdóttir - aðalmaður
  • Hlíf Böðvarsdóttir - aðalmaður
  • Sveinbjörn M Njálsson - fulltrúi skólastjóra
  • Bryndís Stefánsdóttir - fulltrúi kennara
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar

Ritari

  • Katrín Friðriksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1502261

01

Skóladagtal 2015-2016

Skóladagatal 2015 - 2016 lagt fyrir skólanefnd

Skólanefnd telur rétt að taka tillit til þeirra athugasemda sem fram hafa komið frá skólaráðum tveggja skóla. Skólastjórnendur eru því beðnir að færa vetrarfríið til þannig að það sé ekki í sömu viku og öskudagur.

Málsnúmer 1502089

02

Aðstaða í skólum

Skólanefnd tekur jákvætt í erindið með það að markmiði að efla aðstöðu ungmenna í bænum til íþróttaiðkunnar, samnýta mannvirki og auka samvinnu aðila sem koma að starfi barna og ungmenna. Lagt er til að skóladeild, boði íþróttafulltrúa, fulltrúa skólastjórnenda og Stjörnunnar á fund til þess að ræða nánari útfærslu.$line$$line$Jóhann Steinar Ingimundarsson víkur af fundi þegar fjallað er um þetta mál.

Málsnúmer 1409236

03

Samstarf SSH um símenntun grunnskólakennara 2014-2015

Skólanefnd fagnar því að vakin sé athygli á málefnum þessa hóps og hvetur til áframhaldandi fræðslu á þessu sviði þannig að starfsfólk skóla verði vel í stakk búið til að mæta þörfum þessa hóps.

Málsnúmer 1411098

04

Tillaga um að settar verði reglur um samskipti skóla við trúar- og lífsskoðunarfélög.

Skólanefnd leggur til að samskipti skóla og trúfélaga séu í samræmi við tillögur menntamálaráðuneytis frá 4.okt. 2012 um með hvaða hætti skuli staðið að samskiptum skóla og trúfélaga á öllum skólastigum.

Málsnúmer 1502276

05

Kynning á Álftanesskóla

Skólastjórnendur Álftanesskóla segja frá skólastarfinu og sýna húsnæði skólans

Nefndarmenn lýsa yfir ánægju með að fá að kynnast skólanum og skólastarfinu með þessum hætti.