Umsagnir nefnda um tillögu Bjartrar framtíðar um að settar verði reglur um samskipti skóla við trúar- og lífsskoðunarfélög.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
17. (1685). fundur
Bæjarráð samþykkir að reglur sem mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur samþykkt varðandi samskipti við trúar- og lífsskoðunarfélög verði hafðar til viðmiðunar hjá leik- og grunnskólum Garðabæjar.
Fylgiskjöl
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
02
9. fundur
Skólanefnd leggur til að samskipti skóla og trúfélaga séu í samræmi við tillögur menntamálaráðuneytis frá 4.okt. 2012 um með hvaða hætti skuli staðið að samskiptum skóla og trúfélaga á öllum skólastigum.
Leikskólanefnd Garðabæjar
03
5. fundur
Tillaga Bjartrar framtíðar um gerð reglna um samskipti leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila Garðabæjar við trúar- og lífsskoðunarfélög sem bæjarráð vísaði til nefndarinnar rædd. Leikskólanefnd telur að skólar í Garðabæ eigi að taka mið af viðmiðunarreglum þeim sem mennta- og menningarmálaráðuneytið hafa sett í samráði við Heimili og skóla, Samband íslenskra sveitarfélaga, Siðmennt, Biskupsstofu og Kennarasamband Íslands. $line$Leikskólafulltrúa falið að hafa reglurnar aðgengilegar í leikskólum og á heimasíðu Garðabæjar.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
04
5. fundur
Ákveðið að skoða með hvaða hætti þessi mál eru í nágrannasveitarfélögum, kalla eftir upplýsingum frá skólunum, taka málið upp aftur og meta í framhaldinu hvort ástæða sé til að setja sérstök viðmið í Garðabæ.
Bæjarráð Garðabæjar
05
44. fundur
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til umfjöllunar í leikskólanefnd, grunnskólanefnd, ungmennaráði og mannréttinda- og forvarnanefnd.