5. fundur
5. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Hofsstaðaskóla
04.12.2014
Kl. 08:15 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Kjartan Örn Sigurðsson - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Guðrún Arna Kristjánsdóttir - aðalmaður
- Hlíf Böðvarsdóttir - aðalmaður
- Sveinbjörn M Njálsson - fulltrúi skólastjóra
- Bryndís Stefánsdóttir - fulltrúi kennara
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
- Margrét Harðardóttir - fulltrúi skólastjóra
- Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir - fulltrúi foreldra
Ritari
- Katrín Friðriksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1403775
01
Skólar í fremstu röð - SSH
Umræður um nokkur mál er varða gæði skólastarfs í Garðabæ
Sigríður Hulda ræddi um þróun skólamála í Garðabæ og hlutverk nefndarinnar í því efni. Einkum var rætt um læsi, vellíðan nemenda, námsárangur, samfellu í námi, raungreinakennslu, list- og verknám. Einnig um leiðir til að mæla árangur í skólastarfi í víðri merkingu þess orðs.
Málsnúmer 1211124
02
Gegn einelti í Garðabæ
Umræður um tíðni eineltis, umfang og aðgerðir í eineltismálum.
Umræður um umfang eineltis í Garðabæ og aðgerðir í eineltismálum.$line$Mikilvægt að halda umræðunni vakandi, tengja áætlunina frjálsum félagsamtökum og öðrum stofnunum samfélagsins og koma skilaboðum þessa fundar til skólastjórnenda.$line$Í framhaldi verður málið aftur sett á dagskrá skólanefndar.
Málsnúmer 1410267
03
Breytingar á námsmati í grunnskóla 2014
Kynning á bréfi Mennta og menningarmálaráðuneytis varðandi breytingar á aðalnámskrá grunnskóla og stuðning við innleiðingu námskrár
Bréfið kynnt, fundarmenn ánægðir með að ráðuneytið hafa tekið tillit til þeirra athugasemda sem komu fram í umsagnarferlinu.
Málsnúmer 1411098
04
Tillaga um að settar verði reglur um samskipti skóla við trúar- og lífsskoðunarfélög.
Ákveðið að skoða með hvaða hætti þessi mál eru í nágrannasveitarfélögum, kalla eftir upplýsingum frá skólunum, taka málið upp aftur og meta í framhaldinu hvort ástæða sé til að setja sérstök viðmið í Garðabæ.
Málsnúmer 1411332
05
Ósk um samræmdar reglur skóladeildar og lögreglu
Vísað til skóladeildar af Skólaráði Hofsstaðaskóla
Ef lögregla er kölluð til þá fylgjum við hennar fyrirmælum, það er á ábyrgð yfirmanna stofnunnar að meta hvort ástæða er til að kalla til lögreglu en hafa ber í huga að láta börn njóta vafans þegar sú ákvörðun er tekin.
Málsnúmer 1411333
06
Kynning á Hofsstaðaskóla
Skólastjórnendur Hofsstaðaskóla segja frá skólastarfinu og sýna húsnæði skólans
Nefndarmenn eru ánægðir með að fá að kynnast skólunum og skólastarfinu með þessum hætti.