Beint í efni

Skólar í fremstu röð - SSH

Málsnúmer 1403775

Ferill máls

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

01

6. fundur

Gerður Óskarsdóttur flytur erindi sem hún nefnir:$line$Grunnskólinn þróun og framtíðarsýn

Skólanefnd lýsir ánægju með erindi Gerðar.$line$Miklar umræður sköpuðust í framahaldi af því um þróunarsjóð og þróun skólastarfs í Garðabæ.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

02

5. fundur

Umræður um nokkur mál er varða gæði skólastarfs í Garðabæ

Sigríður Hulda ræddi um þróun skólamála í Garðabæ og hlutverk nefndarinnar í því efni. Einkum var rætt um læsi, vellíðan nemenda, námsárangur, samfellu í námi, raungreinakennslu, list- og verknám. Einnig um leiðir til að mæla árangur í skólastarfi í víðri merkingu þess orðs.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

03

3. fundur

Kynning á skólaskýrslu sambandsins og skýrslu SSH um skólamál á höfðuborgarsvæðinu

Sigríður Hulda kynnti skólaskýrslu Sambands Íslenskra sveitarfélaga, 2014, og skýrslu SSH, Skólar og menntun í fremstu röð. Einnig ræddu hún um mikilvægi þess að festa í sessi góðan árangur í grunnskólum Garðabæjar t.d. með því að standa vörð um fagmennsku og uppbyggingarstarf.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

04

34. fundur

Gæði skólastarfs í alþjóðlegum samanburði$line$er hluti af vinnu í tengslum við sóknaráætlun í skólamálum fyrir höfuðborgarsvæðið. Bið ykkur að skoða sérstaklega bls. 46-48 þar sem fjallað er um Garðabæ.

Skólanefnd fagnar því sem vel er gert í grunnskólum Garðabæjar.$line$$line$Hvatt er til þess að bæjarstjórn komi á þverfaglegri nefnd, með fulltrúum þeirra nefnda bæjarins er málið varðar, með að það markmiði að bregðast við því sem fram kemur í skýrslunni um líðan nemenda í Garðabæ og einelti meðal þeirra.