3. fundur
3. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Sjálandsskóla
23.10.2014
Kl. 08:15 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Kjartan Örn Sigurðsson - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Guðrún Arna Kristjánsdóttir - aðalmaður
- Hlíf Böðvarsdóttir - aðalmaður
- Helgi Grímsson - fulltrúi skólastjóra
- Sveinbjörn M Njálsson - fulltrúi skólastjóra
- Bryndís Stefánsdóttir - fulltrúi kennara
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
- Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir - fulltrúi foreldra
Ritari
- Katrín Friðriksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1409426
01
Forvarnastefna
Kynning á drögum að nýrri forvarnarstefnu lögð fram til umsagnar
Skólanefnd lýsir ánægju með nýja stefnu og felur formanni að fara nánar yfir hana með formanni mannréttinda og forvarnarnefndar.
Málsnúmer 1410264
02
Frumvarp til laga um menntamálastofnun - drög
Lagt fram til kynningar
Frumvarpið kynnt skólanefnd
Málsnúmer 1410265
03
Drög að handbók um öryggi og velferð barna i grunnskólum
Lagt fram til kynningar
Handbók um öryggi og velferð barna í grunnskólum lögð fram til kynningar. Skólanefnd leggur áherslu á að handbókin verði kynnt vel í skólunum þegar hún verður gefin út. Deildarstjóra skóladeildar falið að að hafa samband við samband íslenskra sveitarfélag og kanna gildi handbókarinnar.
Málsnúmer 1410267
04
Breytingar á námsmati í grunnskóla 2014
Lagt fram til kynningar
Erindi mennta- og menningarmálaráðuneytis lagt fram til kynningar
Málsnúmer 1311486
05
Ungt fólk 2013
Lagt fram til kynningar
Skýrsla lögð fram til kynningar.
Málsnúmer 1409236
06
Samstarf SSH um símenntun grunnskólakennara 2014-2015
Lagt fram til kynningar og rætt um hvaða fulltrúar eiga að skipa sæti Garðabæjar
Kynning á vinnustofu þann 28. nóv. nk. og rætt um skipan fulltrúa frá Garðabæ
Málsnúmer 1410290
07
Opið samráðsferli um breytingar á lögum er varða frístundaheimili
Lagt fram til kynningar
Skólanefnd lýst vel á að settur sé rammi um starf tómstundaheimila og felur formanni skólanefndar að taka málið upp til umræðu í bæjarráði.
Málsnúmer 1403775
08
Skólar í fremstu röð - SSH
Kynning á skólaskýrslu sambandsins og skýrslu SSH um skólamál á höfðuborgarsvæðinu
Sigríður Hulda kynnti skólaskýrslu Sambands Íslenskra sveitarfélaga, 2014, og skýrslu SSH, Skólar og menntun í fremstu röð. Einnig ræddu hún um mikilvægi þess að festa í sessi góðan árangur í grunnskólum Garðabæjar t.d. með því að standa vörð um fagmennsku og uppbyggingarstarf.
Málsnúmer 1410296
09
Kynning á Sjálandsskóla
Skólastjórnendur Sjálandsskóla segja frá skólastarfinu og sýna húsnæði skólans
Nefndarmenn lýsa yfir ánægju með að fá tækifæri til að kynnast skólunum og skólastarfinu með þessum hætti.