Beint í efni

Gegn einelti í Garðabæ

Málsnúmer 1211124

Ferill máls

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

01

5. fundur

Umræður um tíðni eineltis, umfang og aðgerðir í eineltismálum.

Umræður um umfang eineltis í Garðabæ og aðgerðir í eineltismálum.$line$Mikilvægt að halda umræðunni vakandi, tengja áætlunina frjálsum félagsamtökum og öðrum stofnunum samfélagsins og koma skilaboðum þessa fundar til skólastjórnenda.$line$Í framhaldi verður málið aftur sett á dagskrá skólanefndar.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

02

30. fundur

Endurskoðuð eineltisáætlun

Endurskoðuð áætlun kynnt og fundarmenn sáttir við innhald hennar. Umræður um framkvæmd, eftirfylgd og kannanir. $line$$line$Skólanefnd leggur til við bæjarráð að í samráði við forvarnarnefnd og ÍTG verði skoðað hvort, og með hvaða hætti, hægt sé að útvíkka eineltisáætlun grunnskólanna þannig að hún taki einnig til íþrótta- og æskulýðsstarfs í bænum. $line$$line$Jafnframt er hvatt til þess að eineltiskannanir verði framkvæmdar í grunnskólum bæjarins með reglubundnum hætti.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

03

20. fundur

Námsráðgjafar grunnskóla kynna verkefni skólanna Gegn einelti í Garðabæ.

Námsráðgjafar grunnskóla Garðabæjar kynntu verkefni skólanna Gegn einelti í Garðabæ. Í umræðu kom meðal annars fram að æskilegt væri að reglulega væri gerð könnun á einelti í öllum grunnskólunum sem og að forritið SAGOS væri gott verkfæri við gerð tengslakannana. Þess var óskað að skóladeild leiddi saman aðila úr grunnskólunum, íþrótta- og tómstundaráði og forvarnarnefnd til að vinna að gerð spurningakönnunar varðandi einelti meðal nemenda á grunnskólaldri.

Skólanefnd þakkar verkefnisstjórn Gegn einelti í Garðabæ gott starf.