Beint í efni

30. fundur

13.11.2013
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

30. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

13.11.2013

Kl. 17:15 - 18:45

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Páll Jóhann Hilmarsson - formaður
  • Steinunn Jóhanna Bergmann - aðalmaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
  • Elín Thorarensen - aðalmaður
  • Harpa Guðný Hafberg - aðalmaður
  • Kjartan Örn Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
  • Helgi Grímsson - fulltrúi skólastjóra
  • Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara
  • Jóhanna Guðrún Ólafsdóttir - fulltrúi foreldra
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar

Ritari

  • Katrín Friðriksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1306517

01

Ársskýrslur grunnskóla 2012-2013

Ársskýrslur grunnskólanna lagðar fram til kynningar

Skólanefnd lýsir yfir ánægju sinni með metnaðarfullt starf skólanna og þá heildarmynd sem ársskýrslur skólanna gefa af skólastarfinu.

Málsnúmer 1211124

02

Gegn einelti í Garðabæ

Endurskoðuð eineltisáætlun

Endurskoðuð áætlun kynnt og fundarmenn sáttir við innhald hennar. Umræður um framkvæmd, eftirfylgd og kannanir. $line$$line$Skólanefnd leggur til við bæjarráð að í samráði við forvarnarnefnd og ÍTG verði skoðað hvort, og með hvaða hætti, hægt sé að útvíkka eineltisáætlun grunnskólanna þannig að hún taki einnig til íþrótta- og æskulýðsstarfs í bænum. $line$$line$Jafnframt er hvatt til þess að eineltiskannanir verði framkvæmdar í grunnskólum bæjarins með reglubundnum hætti.

Málsnúmer 1212086

03

Skólastefna Garðabæjar 2010-2014

Mat grunnskólanna á stöðunni haustið 2013 m.t.t. skólastefnu sem tók gildi 2010

Farið yfir mat skólanna á því hvernig til hefur tekist við að koma í framkvæmd og fylgja eftir öllum 54 markmiðum skólastefnunnar. Markvisst hefur verið unnið að innleiðingu stefnunnar í öllum skólunum. Náðst hefur að innleiða markmiðin og festa flest þeirra í sessi sem hefðbundin hluta skólastarfsins önnur eru komin vel á veg. Skólanefnd lýsir yfir ánægju með hversu vel skólunum hefur tekist að fylgja eftir skólastefnu 2010-2013.

Málsnúmer 1210207

04

Tillaga um heildræna sýn í skólamálum

Aukámál á dagskrá vísað til skólanefndar af bæjarráði

Erindið rætt og lagt til að því verði vísað til stýrihóps sem vinnur að endurskoðun skólastefnu.