Beint í efni

20. fundur

13.11.2012
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

20. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

13.11.2012

Kl. 17:15 - 19:15

Um fundinn

Nefndarmenn

• Páll Jóhann Hilmarsson - Formaður
• Jóhann Steinar Ingimundarson - Aðalmaður
• Steinunn Jóhanna Bergmann - Aðalmaður
• Elín Thorarensen - Aðalmaður
• Ragný Þóra Guðjohnsen - Aðalmaður
• Ragnar Gíslason - fulltrúi skólastjóra
• Árni Már Árnason - fulltrúi kennara
• Jóhanna Guðrún Ólafsdóttir - fulltrúi foreldra
• Oddný J Eyjólfsdóttir - deildarstjóri skóladeildar
• Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

• Oddný J. Eyjólfsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1211124

01

Gegn einelti í Garðabæ

Námsráðgjafar grunnskóla kynna verkefni skólanna Gegn einelti í Garðabæ.

Námsráðgjafar grunnskóla Garðabæjar kynntu verkefni skólanna Gegn einelti í Garðabæ. Í umræðu kom meðal annars fram að æskilegt væri að reglulega væri gerð könnun á einelti í öllum grunnskólunum sem og að forritið SAGOS væri gott verkfæri við gerð tengslakannana. Þess var óskað að skóladeild leiddi saman aðila úr grunnskólunum, íþrótta- og tómstundaráði og forvarnarnefnd til að vinna að gerð spurningakönnunar varðandi einelti meðal nemenda á grunnskólaldri.

Skólanefnd þakkar verkefnisstjórn Gegn einelti í Garðabæ gott starf.

Málsnúmer 1211123

02

Hönnun grunnskóla; Hvað ræður för ?

Helgi Grímsson kynnir meistaraprófsritgerð sína um hönnun skóla.

Helgi Grímsson kynnti lokaverkefni sitt til MA gráðu í stjórnunarfræði menntastofnana. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á þau sjónarmið sem réðu för við hönnun nokkurra grunnskóla, greina rætur þeirra og hvernig þeim var ætlað að birtast í ferlinu, byggingunni og skólastarfinu.

Málsnúmer 1201024

03

Samstarfssamningur um Skólavogina

Kynning á Skólavoginni; upplýsinga- og greiningakerfi fyrir sveitarfélög.

Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs kynnti Skólavogina en það er upplýsinga- og greiningarkerfi fyrir sveitarfélög sem tekið var í notkun nú í haust í gunnskólum Garðabæjar. Skólapúlsinn sem grunnskólar nota til að meta viðhorf nemenda, foreldra og starfsmanna með samræmdum hætti er hluti af Skólavoginni.

Í umræðu kom meðal annars fram að æskilegt væri að allir grunnskólar sem starfa í Garðabæ væru aðilar að Skólavoginni. Upplýst var að grunnskólar myndu gera grein fyrir niðurstöðum úr Skólapúlsinum og viðbrögð við þeim í  ársskýrslu fyrir skólaárið 2012-2013 .