44. fundur
44. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
18.11.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1411106
01
Bréf Húsfélagsins Strikið 2-12 varðandi beiðni um stuðning vegna viðhalds lóðar, dags. 04.11.14.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
Málsnúmer 1411105
02
Bréf Boccia-klúbbs Garðabæjar varðandi beiðni um styrk til kaupa á íþróttabolum, dags. 07.11.14.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
Málsnúmer 1410116
03
Ályktun Félags tónlistarskólakennara varðandi kjaraviðræður og athugasemdir við minnisblað frá samninganefnd Sambands ísl. sveitarfélaga, dags. 14.11.14.
Lögð fram.
Málsnúmer 1405089
04
Árshlutareikningur Strætó bs. 30.09.2014.
Lagður fram.
Málsnúmer 1411141
05
Skýrsla Mannvits um liðvagna fyrir Strætó bs.
Lögð fram.
Málsnúmer 1411155
06
Bréf fjármálaráðuneytisins varðandi nýsköpunarverðlaun í opinberri þjónustu og stjórnsýslu, dags. 13.11.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1411137
07
Bréf innanríkisráðuneytisins varðandi skil á fjárhagsáætlun 2015-2018, dags. 10.11.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1411123
08
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um endurskoðun laga um lögheimili, dags. 10.11.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1411098
09
Tillaga Bjartrar framtíðar um að settar verði reglur um samskipti skóla við trúar- og lífsskoðunarfélög, dags. 06.11.14.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til umfjöllunar í leikskólanefnd, grunnskólanefnd, ungmennaráði og mannréttinda- og forvarnanefnd.
Málsnúmer 1411096
10
Tillaga Fólksins í bænum um greiðslur til foreldra sem eru heima með börnum þar til leikskóladvöl býðst, dags. 06.11.14.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til umfjöllunar í leikskólanefnd og mannréttinda- og forvarnanefnd.
Málsnúmer 1411097
11
Yfirlit íþróttafulltrúa um ráðstöfun hvatapeninga árið 2013.
Lagt fram.
Málsnúmer 1409324
12
Bréf umhverfisnefndar varðandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2015-2018, dags. 13.11.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1306038
13
Afgreiðsla mannréttinda- og forvarnanefndar varðandi verkefnið Kynheilbrigði og velferð á öllum skólastigum í Garðabæ, dags. 12.11.14.
Lögð fram.
Málsnúmer 1411100
14
Ljósakur 2-8, ábendingar um óleyfisframkvæmdir.
Bæjarritari gerði nánari grein fyrir stöðu mála varðandi notkun á geymslurýmum í kjallara húsanna við Ljósakur 2 - 8 og breytingum sem gerðar hafa verið á rýmunum. Lögð var fram að nýju úttekt byggingarfulltrúa frá því 10., 11. og 12. júní sl. ásamt áliti eldvarnareftirlits Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, en þau gögn voru kynnt á fundi bæjarráðs 24. júní sl. $line$$line$Lögð fram eftirfarandi tillaga:$line$$line$"Með vísan til álits eldvarnareftirlits Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, sbr. bókun bæjarráðs dags. 24.6.2014, sem og annarra gagna og upplýsinga sem aflað hefur verið síðar, og varða ófullnægjandi brunavarnir í geymslurýmum að Ljósakri 2-8, telur bæjarráð ljóst að samkvæmt 3. mgr. 55. gr. laga nr. 160/2010 og 3. mgr. 2.9.1 gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012, sé bæjarráði skylt að fyrirskipa eigendum geymslurýmanna að hætta notkun þeirra sem íbúðarhúsnæðis eða annarra vistarvera. Bæjarráð felur byggingarfulltrúa að tilkynna eigendum um lokun húsnæðisins að þessu leyti og gefa þeim jafnframt kost á að koma að athugasemdum. Jafnframt er byggingarfulltrúa falið að fylgja því eftir gagnvart eigendum að notkun geymslurýmanna sem íbúðarhúsnæðis sé hætt. $line$$line$Þá skal eigendum jafnframt tilkynnt, með vísan til 2. mgr. 2.9.1 gr. byggingarreglugerðar, sbr. 2. mgr. 55. gr. laganna, að fyrirhugað sé að krefjast þess að óleyfisframkvæmdirnar verði fjarlægðar, og skal eigendum gefinn kostur á að koma að sjónarmiðum sínum og andmælum hvað það varðar. $line$$line$Bæjarráð tók einnig fyrir að nýju erindi eigenda Ljósakurs 2-8, dags. 12.5.2014, varðandi beiðni um breytingu á deiliskipulagi. Áður hefur verið fjallað um sambærilegt erindi en afstaða skipulagsnefndar var að fallast ekki erindi um íbúðarými í kjallara hússins. Ekkert kemur fram í tilvísuðu erindi sem gefur tilefni til endurskoðunar þeirrar afstöðu. Bæjarráð samþykkir því að fela bæjarstjóra að svara erindi eigendanna með vísan til fyrri afstöðu skipulagsnefndar."$line$$line$Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1407502
15
Umsókn um byggingarleyfi - Ásbúð 102.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna viðbyggingar við Ásbúð 102.
Málsnúmer 1411015
16
Fundarboð frá Almannavörnum ofl. um upplýsingafund varðandi mengun frá eldgosi í Holuhrauni.
Lagt fram.
Málsnúmer 1410314
17
Bréf kennara í Tónlistarskóla Garðabæjar um gerð kjarasamnings, dags. 11.11.14.
Lagt fram og vísað til umfjöllunar skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar.
Málsnúmer 1403558
18
Bréf Orkuveitu Reykjavíkur til SSH varðandi tillögu að endurskoðun vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu, dags. 10.11.14.
Lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 1409324
19
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015 (Heimsóknir í stofnanir).
Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningu útsvars á árinu 2015.$line$$line$"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 13,66% á tekjur manna á árinu 2015 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 1. mgr. 24. gr. laganna. $line$Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2014 samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga. $line$Í frumvarpi til laga um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2015, sem er nú til meðferðar hjá Alþingi, kemur fram að gert er ráð fyrir að ákvæði XVI til bráðabirgða í lögum um tekjustofna sveitarfélaga framlengist um eitt ár og gildi á árinu 2015. Hlutdeild Jöfnunarsjóðs í útsvartekjum sveitarfélaga hækkar samkvæmt því úr 0,95% í 0,99%. Verði frumvarpið að lögum áskilur bæjarstjórn Garðabæjar sér rétt til að hækka álagningarhlutfall útsvar um 0,4% eða í 13,70% enda lækkar tekjuskattshlutfall ríkisins samsvarandi.?$line$$line$Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.$line$$line$Farið var í heimsóknir í eftirfarandi stofnanir bæjarins.$line$$line$Sjálandsskóla, Ísafold - hjúkrunarheimili og þjónustumiðstöð"