Bréf kennara í Tónlistarskóla Garðabæjar um gerð kjarasamnings, dags. 11.11.2014.
Ferill máls
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
01
6. fundur
Lagt var fram bréf kennara í Tónlistarskóla Garðabæjar frá 11. nóvember þar sem þeir lýsa yfir áhyggjum af stöðu mála í kjaraviðræðum FT og SNS. Skólanefnd tekur undir áhyggjur kennara af stöðu mála en bindur vonir við að þeir fundir sem hafa verið milli viðsemjenda undanfarna daga leiði til ásættanlegrar niðurstöðu beggja aðila. $line$Samkvæmt ákvörðun bæjarstjóra var innheimtu annars gjalddags skólagjalda fyrir skólaárið frestað hjá þeim nemendum sem stunda tónlistarnám hjá kennurum sem eru í verkfalli. Nánari ákvörðun verður tekin af bæjarráði þegar verkfalli lýkur.
Bæjarráð Garðabæjar
02
44. fundur
Lagt fram og vísað til umfjöllunar skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar.
Bæjarráð Garðabæjar
03
41. fundur
Lögð fram ályktun kennara við Tónlistarskóla Garðabæjar þar sem biðlað er til bæjarstjórnar Garðabæjar til að hvetja samninganefnd sveitarfélaga til að semja við tónlistarkennara á þeim nótum sem þegar hefur verið gert við önnur aðildarfélög Kennarasambandsins.$line$$line$Bæjarráð telur mikilvægt að samningar til lausnar kjaradeilu tónlistarkennarar takist sem fyrst til að starfsemi skólans raskist sem minnst.