41. fundur
41. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
28.10.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Ályktanir fulltrúafundar Þroskahjálpar 18.10.2014 varðandi þjónustu við fatlað fólk.
Lagðar fram og vísað til kynningar fjölskylduráðs.$line$$line$Guðrún Elín Herbertsdóttir, lagði fram eftirfarandi bókun.$line$$line$"Björt framtíð í Garðabæ lýsir yfir vonbrigðum sínum að lögfesting þessara samninga hafi verið tafin um heil 2 ár til viðbótar. Þetta hljómar kannski ágæt tímabundin lausn en hún býður í raun upp á mikla óvissu, sérstaklega fyrir fólk sem ekki fékk NPA samning í tilraunaverkefninu og batt vonir við að geta sótt um við lögfestingu. Það á að vera sjálfsagður réttur fólks að búa við lagaleg réttindi, ekki bara tilraunaverkefni."
02
Ályktun kennara Tónlistarskóla Garðabæjar um gerð kjarasamnings, dags. 20.10.14.
Lögð fram ályktun kennara við Tónlistarskóla Garðabæjar þar sem biðlað er til bæjarstjórnar Garðabæjar til að hvetja samninganefnd sveitarfélaga til að semja við tónlistarkennara á þeim nótum sem þegar hefur verið gert við önnur aðildarfélög Kennarasambandsins.$line$$line$Bæjarráð telur mikilvægt að samningar til lausnar kjaradeilu tónlistarkennarar takist sem fyrst til að starfsemi skólans raskist sem minnst.
04
Bréf IKEA varðandi ferðir strætisvagna í Kauptún, dags. 21.10.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari athugunar stjórnar Strætó bs.
05
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um framhaldsskóla, 214. mál, dags. 17.10.14.
Lagt fram.
06
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um vegalög (gjaldtaka af umferð o.fl, EES reglur) 157. mál, dags. 17.10.14.
Lagt fram.
07
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um verslun með áfengi og tóbak (smásala áfengis), 17. mál, dags. 23.10.14.
Lagt fram.
08
Bréf menntamálaráðuneytisins varðandi samráðsferli um breytingar á lögum er varða frístundaheimili, dags. 17.10.14.
Lagt fram.
09
Bréf foreldra leikskólabarna á Krakkakoti varðandi umbætur á lóð leikskólans, dags. 13.10.14.
Bæjarstjóri upplýsti að búið er að panta nýjan kastala á lóðina í samræmi við óskir foreldra. $line$$line$Bæjarráð vísar bréfinu að öðru leyti til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.
10
Bréf Samtaka um kvennaathvarf varðandi rekstrarstyrk fyrir árið 2015, dags. í okt. 2014.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015
11
Umsókn um byggingarleyfi - Hellagata 31
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna byggingar fjölbýlishúss fyrir 9 íbúðir að Hellagötu 31.
12
Umsókn um byggingarleyfi - Kinnargata 7
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna byggingar parhúss á lóðinni við Kinnargötu 7.
13
Umsókn um byggingarleyfi - Kinnargata 9
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna byggingar parhúss á lóðinni við Kinnargötu 9.
14
Umsókn um byggingarleyfi - Kornakur 5
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna byggingar einbýlishúss við Kornakur 5.
15
Umsókn um byggingarleyfi - Smáraflöt 6
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna viðbyggingar við Smáraflöt 6.
16
Bréf Minjastofnunar varðandi umsóknir um styrki úr Húsafriðunarsjóði, dags. 23.10.14.
Lagt fram.
17
Bréf skólastjóra Sjálandsskóla varðandi samþykkt skólaráðs um aðkomu og öryggi skólabarna á skólalóð, dags. 13.10.14.
Málið rætt. $line$Bæjarráð felur bæjarverkfræðings og forstöðumanns fræðslu- og menningarsviðs frekari úrvinnslu málsins í samráði við skólastjóra Sjálandsskóla og hagsmunaaðila er tengjast starfsemi í húsnæðinu.
18
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015 - 2018.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri mætti á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015 og árin 2016 - 2018.$line$$line$Niðurstöður rekstrarreiknings fyrir A og B hluta samkvæmt tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015 eru:$line$$line$$line$Heildartekjur 10.992.431 þkr.$line$Gjöld 10.246.220 þkr.$line$Niðurstaða án fjármagnsliða 746.211 þkr.$line$Fjármunatekjur (gjöld) (573.434) þkr.$line$$line$Rekstrarniðurstaða 172.776 þkr.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar til fyrri umræðu i bæjarstjórn samkvæmt 3. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. einnig 2. mgr. 40. gr. um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013.