Beint í efni

6. fundur

20.11.2014
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

6. fundur

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

20.11.2014

Kl. 17:00 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Kristinn Guðlaugsson - formaður
  • Þorgerður Anna Arnardóttir - aðalmaður
  • Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
  • Kristín Harðardóttir - aðalmaður
  • Laufey Ólafsdóttir - skólastjóri
  • Lúðvík Hjalti Jónsson - embættismaður

Ritari

  • Kristinn Guðlaugsson

Dagskrá

Málsnúmer 1410148

01

Fjárhagsáætlun fyrir árið 2015

Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri Garðabæjar mætti til fundarins undir þessum lið og fór yfir helstu lykiltölur í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015 og þá sérstaklega því er snýr að tónlistarskólanum. Gert er ráð fyrir 5% aukningu í gjöldum til tónlistarskólans á komandi ári. $line$Skólanefndin er sammála að beina því til bæjarráðs að Hvatapeningar nýtist nemendum upp í skólagjöld tónlistarskólans á næsta skólaári.

Málsnúmer 1410314

02

Bréf kennara í Tónlistarskóla Garðabæjar um gerð kjarasamnings, dags. 11.11.2014.

Lagt var fram bréf kennara í Tónlistarskóla Garðabæjar frá 11. nóvember þar sem þeir lýsa yfir áhyggjum af stöðu mála í kjaraviðræðum FT og SNS. Skólanefnd tekur undir áhyggjur kennara af stöðu mála en bindur vonir við að þeir fundir sem hafa verið milli viðsemjenda undanfarna daga leiði til ásættanlegrar niðurstöðu beggja aðila. $line$Samkvæmt ákvörðun bæjarstjóra var innheimtu annars gjalddags skólagjalda fyrir skólaárið frestað hjá þeim nemendum sem stunda tónlistarnám hjá kennurum sem eru í verkfalli. Nánari ákvörðun verður tekin af bæjarráði þegar verkfalli lýkur.

Málsnúmer 1411203

03

Undirbúningur að stofnun foreldrafélags Tónlistarskóla Garðabæjar

Umræður voru um foreldrafélag til stuðnings og eflingu góðu starfi skólans.