Fjárhagsáætlun fyrir árið 2015
Ferill máls
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
01
6. fundur
Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri Garðabæjar mætti til fundarins undir þessum lið og fór yfir helstu lykiltölur í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015 og þá sérstaklega því er snýr að tónlistarskólanum. Gert er ráð fyrir 5% aukningu í gjöldum til tónlistarskólans á komandi ári. $line$Skólanefndin er sammála að beina því til bæjarráðs að Hvatapeningar nýtist nemendum upp í skólagjöld tónlistarskólans á næsta skólaári.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
02
5. fundur
Farið var yfir vinnuferlið við fjárhagsáætlunargerð. Gert er ráð fyrir að tillaga að fjárhagsáætlun verði lögð fram í bæjarráði 28. október. Fyrri umræða í bæjarstjórn verður 6. nóvember og síðari umræða 4. desember. Skólastjóri fór yfir helstu mál er líta að tónlistarskólanum en kominn er tími á nokkra endurnýjun í hljóðfærum. Leggur nefndin áherslu á að nemendur hafi úr góðum hljóðfærum að spila.