Beint í efni

5. fundur

16.10.2014
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

5. fundur

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

16.10.2014

Kl. 17:00 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Kristinn Guðlaugsson - formaður
  • Þorgerður Anna Arnardóttir - aðalmaður
  • Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
  • Kristín Harðardóttir - aðalmaður
  • Guðrún Sesselja Arnardóttir - aðalmaður
  • Laufey Ólafsdóttir - skólastjóri

Ritari

  • Kristinn Guðlaugsson

Dagskrá

Málsnúmer 1410148

01

Fjárhagsáætlun fyrir árið 2015

Farið var yfir vinnuferlið við fjárhagsáætlunargerð. Gert er ráð fyrir að tillaga að fjárhagsáætlun verði lögð fram í bæjarráði 28. október. Fyrri umræða í bæjarstjórn verður 6. nóvember og síðari umræða 4. desember. Skólastjóri fór yfir helstu mál er líta að tónlistarskólanum en kominn er tími á nokkra endurnýjun í hljóðfærum. Leggur nefndin áherslu á að nemendur hafi úr góðum hljóðfærum að spila.

Málsnúmer 1408461

02

Skólastarf tónlistarskóla 2014-2015

Skólastjóri fór yfir fyrstu vikurnar í skólastarfinu sem hefur farið mjög vel af stað, fjölda nemenda og fjölda þeirra sem eru á biðlista. Fram kom að skólahúsnæðið er vel nýtt fram á kvöld og mikilvægt er að huga að stækkun á húsnæði skólans á þessu kjörtímabili.

Málsnúmer 1410146

03

Skólagjöld 2015-2016

Lögð fram gjaldskrá TG fyrir skólaárið 2013-2014 en engin hækkun varð á skólagjöldum fyrir yfirstandandi skólaár. Samkvæmt 11. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla kemur fram að tónlistarskólum ber að innheimta skólagjöld til að standa undir öðrum kostnaði en launum kennara og skólastjóra. Verður frekar rætt á næsta fundi nefndarinnar í tengslum við nánari yfirferð fjárhagasáætlunar.

Málsnúmer 1410147

04

Skólanámskrá Tónlistarskóla Garðabæjar

Skólastjóri nefndi að vinna er að hefjast við vinnu að skólanámskrá TG. Miðað verður við þær skólanámskrár sem voru í skólunum tveimur fyrir sameiningu og aðalnámskrár tónlistarskóla útgefna af mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Þar sem bæði er fjallað um almennanhluta og sérstaka greinahluta.

Málsnúmer 1408463

05

Foreldra- og þjónustukannanir

Fram kom hjá skólastjóra að stefnt er að leggja könnun fyrir foreldra og starfsfólk í febrúar eða mars 2015. Verið er að kanna hvort sú könnun yrði framkvæmd af sveitarfélaginu eða utanaðkomandi aðili fenginn til að framkvæma könnunina.

Málsnúmer 1410116

06

Kjaramál tónlistarskólakennara og stjórnenda tónlistarskóla

Lagðar voru fram ályktanir frá sex svæðaþingum tónlistarskóla og frá samstöðufundi sem haldinn var þann 7. október. Nefndin vonar að ekki komi til boðaðrar vinnustöðvunar þann 22. október og hvetur um leið samningsaðila til að komast að ásættanlegri niðurstöðu þannig að skólahald riðlist ekki.