Beint í efni

Skólastarf tónlistarskóla 2014-2015

Málsnúmer 1408461

Ferill máls

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

01

9. fundur

Skólaslit tónlistarskólans fóru fram föstudaginn 29. maí. Fram kom hjá skólastjóra að fimm burtfarartónleikar voru frá tónlistarskólanum nú í vor. Nemendur er sóttu nám við skólann voru 540 og 52 kennarar störfuðu við skólann.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

02

8. fundur

Skólastjóri sagði frá framhaldsprófstónleikum Helga Þorleikssonar sem haldnir voru þriðjudaginn 17. mars og heppnuðust einstaklega vel og mikill fjöldi mætti á tónleikana. Í vor verða haldnir samtals fimm framhaldsprófstónleikar við TG. $line$Skólastjóri fór yfir það helsta í starfinu nú í mars og út vorið. Í mars fer fram viðhorfskönnun meðal foreldra og í apríl verður framkvæmd starfsmannakönnun.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

03

7. fundur

Skólastjóri sagði frá degi tónlistarskólans sem haldinn var laugardaginn 31. janúar nemendur tónlistarskólans komu fram á 10 tónleikum þennan dag og voru þeir haldnir í sal Íþróttamiðstöðvar Álftaness og í báðum sölum Kirkjulundi. Í lok þessa dags komu 14 nemendur Tónlistarskóla Garðabæjar fram á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna í Langholtskirkju. Einleikari með hljómsveitinni er Helgi Þorleiksson slagverksnemandi við Tónlistarskóla Garðabæjar.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

04

5. fundur

Skólastjóri fór yfir fyrstu vikurnar í skólastarfinu sem hefur farið mjög vel af stað, fjölda nemenda og fjölda þeirra sem eru á biðlista. Fram kom að skólahúsnæðið er vel nýtt fram á kvöld og mikilvægt er að huga að stækkun á húsnæði skólans á þessu kjörtímabili.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

05

1. fundur

Skólastjóri fór yfir fjölda nemenda sem verða um 520 og kennara við skólann sem eru 49. Í ár verður boðið upp á tónlistarval í samstarfi við Garðaskóla sem kallast rytmísk hringekja. Hringekjan skoðast sem valgrein í 9. og 10. bekk í Garðaskóla og fer kennslan fram á skólatíma nemenda. Fjórir kennarar frá Tónlistarskólanum munu kenna þátttakendum í hringekjunni á rafgítar, rafbassa, hljómborð og trommur. Kennt er á hvert hljóðfæri í um 6 vikur og í lokin eru myndaðar hljómsveitir og spiluð lög í samræmi við getu hvers hóps.