1. fundur
1. fundur
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
í Tónlistarskóla Garðabæjar, Kirkjulundi
28.08.2014
Kl. 17:00 - 17:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Kristinn Guðlaugsson - formaður
- Þorgerður Anna Arnardóttir - aðalmaður
- Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
- Kristín Harðardóttir - aðalmaður
- Guðrún Sesselja Arnardóttir - aðalmaður
- Laufey Ólafsdóttir - forstöðumaður
Ritari
- Laufey Ólafsdóttir
Dagskrá
01
Reglugerð fyrir Tónlistarskóla Garðabæjar.
Farið var yfir hlutverk skólanefndar, kynnt og lögð fram reglugerð fyrir Tónlistarskóla Garðabæjar frá 23. ágúst 2013.
02
Skóladagatal tónlistarskóla 2014-2015.
Lagt fram skóladagatal fyrir skólaárið 2014-2015 en skólasetning TG fór fram þriðjudaginn 26. ágúst. Við skólasetningu léku m.a. Stefán Páll Sturluson á gítar og Helgi Þorleiksson á slagverk en þeir voru báðir á sumarlaunum frá Garðabæ í sumar.
03
Skólastarf tónlistarskóla 2014-2015.
Skólastjóri fór yfir fjölda nemenda sem verða um 520 og kennara við skólann sem eru 49. Í ár verður boðið upp á tónlistarval í samstarfi við Garðaskóla sem kallast rytmísk hringekja. Hringekjan skoðast sem valgrein í 9. og 10. bekk í Garðaskóla og fer kennslan fram á skólatíma nemenda. Fjórir kennarar frá Tónlistarskólanum munu kenna þátttakendum í hringekjunni á rafgítar, rafbassa, hljómborð og trommur. Kennt er á hvert hljóðfæri í um 6 vikur og í lokin eru myndaðar hljómsveitir og spiluð lög í samræmi við getu hvers hóps.
04
Náms- og kynnisferð starfsmanna til Vínarborgar.
Skólastjóri gerði grein fyrir náms- og kynnisferð starfsfólks Tónlistarskóla Garðbæjar til Vínarborgar síðastliðið vor. Farið var 28. maí og komið til baka 2. júní.
05
Foreldra- og þjónustukannanir.
Farið yfir og kynntar helstu niðurstöður í foreldrakönnun TG sem framkvæmd var vorið 2013. Umræður voru um umfang og tíðni þjónustukannanna. $line$Málið verður áfram á dagskrá nefndarinnar.