7. fundur
7. fundur
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
26.02.2015
Kl. 17:00 - 17:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Kristinn Guðlaugsson - formaður
- Þorgerður Anna Arnardóttir - aðalmaður
- Kristín Harðardóttir - aðalmaður
- Þórey Ólafsdóttir - varamaður
- Laufey Ólafsdóttir - skólastjóri
Ritari
- Laufey Ólafsdóttir, skólastjóri
Dagskrá
Málsnúmer 1502261
01
Skóladagatal 2015-2016.
Skólastjóri fór yfir drög að skóladagatali 2015-2016 og helstu dagsetningar. Fram kom að tónlistarskólinn verður settur 27. ágúst og skólaslit verða 27. maí 2016. Jóla- og páskafrí ásamt vetrarfríi verða samræmd skóladagatali grunnskólanna.
Málsnúmer 1408461
02
Skólastarf tónlistarskóla 2014-2015.
Skólastjóri sagði frá degi tónlistarskólans sem haldinn var laugardaginn 31. janúar nemendur tónlistarskólans komu fram á 10 tónleikum þennan dag og voru þeir haldnir í sal Íþróttamiðstöðvar Álftaness og í báðum sölum Kirkjulundi. Í lok þessa dags komu 14 nemendur Tónlistarskóla Garðabæjar fram á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna í Langholtskirkju. Einleikari með hljómsveitinni er Helgi Þorleiksson slagverksnemandi við Tónlistarskóla Garðabæjar.
Málsnúmer 1501340
03
Samþykkt menningar- og safnanefndar um styrk vegna tónleika stórsveitar og strengjasveitar Tónlistarskóla Garðabæjar.
Sagt var frá samþykkt menningar- og safnanefndar um styrk að fjárhæð kr. 300.000 til Tónlistarskóla Garðabæjar vegna tónleika stórsveitar og strengjasveitar skólans ásamt söngvurunum Jóhanna Vigdísi Arnardóttur og Jóni Svavari Jósefssyni í Kirkjuhvoli 26. apríl.
Málsnúmer 1408463
04
Foreldra- og þjónustukannanir.
Skólastjóri upplýsti að í mars stæði til að leggja fyrir könnun til foreldra sambærilega þeirri sem lögð var fyrir vorið 2013.
Málsnúmer 1501288
05
Íbúakönnun 2014.
Sagt var frá íbúakönnun Capacent 2014 og er nefndarfólk hvatt til að kynna sér niðurstöður hennar.
Málsnúmer 1302243
06
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030, endurskoðun.
Fyrir fundinum lá lýsing - verkáætlun fyrir Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030, endurskoðun. Nefndarfólk er hvatt til að kynna sér lýsinguna og verkáætlunina og fleiri gögn tengd aðalskipulagi á vef Garðabæjar.