Samþykkt menningar- og safnanefndar um styrk vegna tónleika stórsveitar og strengjasveitar Tónlistarskóla Garðabæjar.
Ferill máls
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
01
7. fundur
Sagt var frá samþykkt menningar- og safnanefndar um styrk að fjárhæð kr. 300.000 til Tónlistarskóla Garðabæjar vegna tónleika stórsveitar og strengjasveitar skólans ásamt söngvurunum Jóhanna Vigdísi Arnardóttur og Jóni Svavari Jósefssyni í Kirkjuhvoli 26. apríl.
Bæjarráð Garðabæjar
02
5 (1673). fundur
Lögð fram til kynningar samþykkt menningar- og safnanefndar um styrk að fjárhæð kr. 300.000 til Tónlistarskóla Garðabæjar vegna tónleika stórsveitar og strengjasveitar skólans ásamt söngvurunum Vigdísi Arnardóttur og Jóni Svavari Jósefssyni í Kirkjuhvoli.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
4. fundur
Tekið var til umfjöllunar bréf skólastjóra Tónlistarskóla Garðabæjar, dags. 19. janúar 2015, með beiðni um styrk að fjárhæð kr. 300.000 vegna tónleikahalds stórsveitar og strengjasveitar skólans ásamt söngvurunum Jóhönnu Vigdísi Arnardóttur og Jóni Svavari Jósefssyni, sem bæði eru fyrrverandi nemendur tónlistarskólans, í Kirkjuhvoli um miðjan apríl 2015. Öllum bæjarbúum yrði boðið á tónleikana.$line$Menningar- og safnanefnd samþykkir erindið þar sem verkefnið stuðlar að því að tengja útskriftarnemendur við atvinnufólk í faginu. $line$