4. fundur
4. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
23.01.2015
Kl. 08:15 - 08:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
- Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður
- Erling Jóhannesson - aðalmaður
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1411138
01
Starfsáætlun menningar- og safnanefndar
Starfsáætlun menningar- og safnanefndar fyrir árið 2015 var lögð fram og rædd. Tilgangur með framlagningu starfsáætlunar nefndarinnar er að tryggja utanumhald helstu verkefna á starfsárinu, skipuleggja mætingu utanaðkomandi aðila á fundi og stuðla að markvissum undirbúningi funda menningar- og safnanefndar.
Málsnúmer 1410201
02
Vetrarhátíð - safnanótt og sundlauganótt 2015
Safnanótt og sundlauganótt eru hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík sem fer fram dagana 5.-8. febrúar nk. Söfn á höfuðborgarsvæðinu hafa tekið þátt í Safnanótt undanfarin ár og tekist vel til. Garðabær var með í Sundlauganótt í fyrsta sinn í fyrra og nú í ár munu fleiri sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu taka þátt í þeim viðburði. $line$Safnanótt verður haldin föstudaginn 6. febrúar kl. 19-24 og Sundlauganótt fer fram laugardagskvöldið 7. febrúar og stendur til miðnættis. $line$Farið var yfir dagskrána sem verður í söfnum Garðabæjar á safnanótt og dagskrána sem verður í Álftaneslaug á Sundlauganótt. Dagskráin verður kynnt nánar á heimasíðu Garðabæjar.$line$
Málsnúmer 1501334
03
Þriðjudagsklassík 2015
Formaður greindi frá nýlegum fundi sínum og upplýsinga- og menningarfulltrúa með Ingibjörgu Guðjónsdóttur, tónlistarmanni, um klassísku tónleikaröðina Þriðjudagsklassík í Garðabæ. $line$Ingibjörg hefur sett saman drög að dagskrá og fjárhagsáætlun fyrir tónleikaröðina vorið 2015 og lágu dagskrárdrögin og fjárhagsáætlunin frammi á fundinum. $line$Menningar- og safnanefnd samþykkir að halda tónleikaröðina Þriðjudagsklassík í Garðabæ á vorönn 2015 samkvæmt fyrirliggjandi dagskrárdrögum þar sem gert er ráð fyrir fernum tónleikum, í mars, apríl, maí og júní nk. Jafnframt samþykkir nefndin fram lagða fjárhagsáætlun tónleikaraðarinnar. Lagt til að nánar verði skoðað um möguleika á föstum samstarfssamningi um Þriðjudagsklassík. $line$
Málsnúmer 1501341
04
Jazzhátíð 2015
Formaður sagði frá nýlegum fundi sínum og upplýsinga- og menningarfulltrúa með Sigurði Flosasyni, tónlistarmanni og listrænum stjórnanda Jazzhátíðar Garðabæjar frá upphafi. Jazzhátíðin hefur verið haldin árlega frá árinu 2006 að vori til, oftast með upphaf á Sumardaginn fyrsta. $line$Farið var yfir hvernig dagskráin hefur verið undanfarin ár.$line$Að mati nefnarmanna hefur vel tekist til með Jazzhátíð hingað til og samþykkir nefndin að stefnt skuli að því að halda Jazzhátíð Garðabæjar í tíunda sinn í lok apríl 2015. Samþykkt var að fela Sigurði Flosasyni að vera listrænn stjórnandi Jazzhátíðar Garðabæjar 2015 og útfæra dagskrá hátíðarinnar, eins og áður. Rætt um að skoða hvernig væri hægt að útfæra samstarfssamning um Jazzhátíð til lengri tíma. $line$
Málsnúmer 1501340
05
Beiðni um styrk vegna tónleika stórsveitar og strengjasveitar Tónlistarskóla Garðabæjar
Tekið var til umfjöllunar bréf skólastjóra Tónlistarskóla Garðabæjar, dags. 19. janúar 2015, með beiðni um styrk að fjárhæð kr. 300.000 vegna tónleikahalds stórsveitar og strengjasveitar skólans ásamt söngvurunum Jóhönnu Vigdísi Arnardóttur og Jóni Svavari Jósefssyni, sem bæði eru fyrrverandi nemendur tónlistarskólans, í Kirkjuhvoli um miðjan apríl 2015. Öllum bæjarbúum yrði boðið á tónleikana.$line$Menningar- og safnanefnd samþykkir erindið þar sem verkefnið stuðlar að því að tengja útskriftarnemendur við atvinnufólk í faginu. $line$
Málsnúmer 1409212
06
100 ára afmæli kosningaréttar kvenna
Á árinu 2015 verður þess minnst að 100 ár eru frá því að íslenskar konur fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. $line$Lagt var fram erindi afmælisnefndar um 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna sem tekið var fyrir í bæjarráði Garðabæjar í september 2014 og vísað til mannréttinda- og forvarnanefndar bæjarins sem vill athuga um samstarf við aðrar nefndir um málið, þ.m.t. menningar- og safnanefnd.$line$Greint var frá bréfi Kvenfélags Álftaness, dags. 05.01.2015, varðandi ráðstefnu sem félagið hyggst halda í heimabyggð í mars næstkomandi í tilefni af 100 ára kosningarétti kvenna undir yfirskriftinni,,Kosningaréttur kvenna í 100 ár - staða kvenna þá og nú". $line$Umræður voru um málið og samþykkti nefnin að fela upplýsinga- og menningarfulltrúa að kanna hvort og þá með hvaða hætti söfn og fyrirtæki bæjarins geti komið að viðburðahaldi tengdu afmælinu. $line$
Málsnúmer 1501342
07
Umsóknir um afnot af Bjarnastöðum
Farið yfir fyrirliggjandi umsóknir.
Auglýst var eftir umsóknum félaga og félagasamtaka um afnot af húsnæði á Bjarnastöðum í lok nóvember á síðasta ári. Umsóknarfrestur var framlengdur til 12. janúar og auglýstur aftur í desember í Garðapóstinum og á vef Garðabæjar. $line$Umsóknir voru lagðar fram og ræddar. Umræðu verður haldið áfram á næsta fundi.$line$
Málsnúmer 1501344
08
Hvatningarsjóður ungra listamanna 2015
Farið yfir fyrirliggjandi reglur og auglýsingu.
Samkvæmt reglum um Hvatningarsjóð ungra listamanna í Garðabæ skal í samræmi við fjárhagsáætlun bæjarins hverju sinni veita styrki til ungra listamanna í Garðabæ til að efla þá og hvetja til frekari listsköpunar. Menningar- og safnanefnd skal auglýsa eftir umsóknum um styrkina á vorönn. Nefndin ákveður síðan fjölda styrkja og upphæðir miðað við fyrirliggjandi umsóknir hverju sinni.$line$$line$Farið var yfir fyrirkomulag úthlutunar styrkja úr hvatningarsjóðnum. Samþykkt var að fela upplýsinga- og menningarfulltrúa að auglýsa eftir umsóknum um styrki úr hvatningarsjóðnum í mars næstkomandi.$line$$line$$line$$line$Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir vék af fundi.$line$$line$
Málsnúmer 1501381
09
Opinn fundur menningar- og safnanefndar
Framhald umræðu frá 1. fundi menningar- og safnanefnar í ágúst sl. um opinn fund/ hugarflæðisfund um menningarmál í Garðabæ á vegum nefndarinnar þar sem öllum almenningi og áhugafólki um menningarmál í bænum, þ.m.t. fulltrúum frjálsra félagasamtaka í bænum, verði boðið að koma hugmyndum sínum og ábendingum á framfæri með það að markmiði að efla enn og bæta menningarlíf í Garðabæ á komandi misserum og árum.$line$Rætt var um markmið slíks fundar, umgjörð, fyrirkomulag og tímasetningu. $line$Upplýsinga- og menningarfulltrúa og formanni falið að vinna áfram að undirbúningi opins fundar nefndarinnar og stefnt að því að halda hann í mars á þessu ári.$line$
Málsnúmer 1302243
10
Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum þann 4. desember 2014 tillögu skipulagsnefndar að lýsingu á verkefninu Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 þar sem koma fram helstu áherslur, forsendur, fyrirliggjandi stefna og fyrirhugað skipulagsferli samkvæmt 1. mgr. 30.gr. Skipulagslaga nr 123/2010. $line$Lýsingin var lögð fram til kynningar, en hún er aðgengileg á heimasíðu Garðabæjar og í þjónustuveri bæjarins að Garðatorgi 7. Frestur til að skila inn ábendingum vegna lýsingarinnar er til 17. febrúar 2015. $line$Formanni og upplýsingafulltrúa falið að koma því á framfæri að nefndin telur að umfjöllun um menningarmál þurfi að koma betur inn í lýsingu á aðalskipulaginu. $line$
Málsnúmer 1501288
11
Íbúakönnun 2014
Lögð var fram til kynningar könnun Capacent á ánægju íbúa með þjónustu sveitarfélaga landsins og samanburð milli sveitarfélaga ásamt breytingum frá fyrri mælingum. $line$Farið var yfir helstu þætti könnunarinnar.$line$