Beint í efni

Vetrarhátíð - safnanótt og sundlauganótt 2015

Málsnúmer 1410201

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

4. fundur

Safnanótt og sundlauganótt eru hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík sem fer fram dagana 5.-8. febrúar nk. Söfn á höfuðborgarsvæðinu hafa tekið þátt í Safnanótt undanfarin ár og tekist vel til. Garðabær var með í Sundlauganótt í fyrsta sinn í fyrra og nú í ár munu fleiri sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu taka þátt í þeim viðburði. $line$Safnanótt verður haldin föstudaginn 6. febrúar kl. 19-24 og Sundlauganótt fer fram laugardagskvöldið 7. febrúar og stendur til miðnættis. $line$Farið var yfir dagskrána sem verður í söfnum Garðabæjar á safnanótt og dagskrána sem verður í Álftaneslaug á Sundlauganótt. Dagskráin verður kynnt nánar á heimasíðu Garðabæjar.$line$