Þriðjudagsklassík 2015
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
7. fundur
Farið var yfir hvernig hefur tekist til með Þriðjudagsklassík nú á vorönn en þrennir tónleikar af fjórum í tónleikaröðinni 2015 hafa nú verið haldnir. Þriðju tónleikarnir fóru fram þriðjudagskvöldið 5. maí sl. en þá stigu á svið í sal Tónlistarskóla Garðabæjar Gunnar Kvaran á selló og Elísabet Waage á hörpu.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
5. fundur
Fyrstu tónleikarnir af fjórum í tónleikaröðinni Þriðjudagsklassík 2015 á vegum menningar- og safnanefndar voru haldnir þriðjudaginn 3. mars sl. Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari var með einleikstónleika í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. $line$Samkvæmt fyrirliggjandi dagskrá, sem lá frammi á fundinum, verða næstu tónleikar í tónleikaröðinni haldnir þriðjudaginn 7. apríl, þriðjudaginn 5. maí og þriðjudaginn 2. júní nk.$line$
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
4. fundur
Formaður greindi frá nýlegum fundi sínum og upplýsinga- og menningarfulltrúa með Ingibjörgu Guðjónsdóttur, tónlistarmanni, um klassísku tónleikaröðina Þriðjudagsklassík í Garðabæ. $line$Ingibjörg hefur sett saman drög að dagskrá og fjárhagsáætlun fyrir tónleikaröðina vorið 2015 og lágu dagskrárdrögin og fjárhagsáætlunin frammi á fundinum. $line$Menningar- og safnanefnd samþykkir að halda tónleikaröðina Þriðjudagsklassík í Garðabæ á vorönn 2015 samkvæmt fyrirliggjandi dagskrárdrögum þar sem gert er ráð fyrir fernum tónleikum, í mars, apríl, maí og júní nk. Jafnframt samþykkir nefndin fram lagða fjárhagsáætlun tónleikaraðarinnar. Lagt til að nánar verði skoðað um möguleika á föstum samstarfssamningi um Þriðjudagsklassík. $line$