5. fundur
5. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
á Bjarnastöðum
13.03.2015
Kl. 08:15 - 08:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður
- Jóna Valborg Árnadóttir - varamaður
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1501341
01
Jazzhátíð 2015
Sigurður Flosason, tónlistarmaður og listrænn stjórnandi jazzhátíðar Garðabæjar 2015, mætti á fundinn og fór yfir drög að dagskrá Jazzhátíðar Garðabæjar sem verður haldin í tíunda sinn í apríl nk., nánar tiltekið dagana 23.-26. apríl 2015. Rætt var um hvernig framkvæmd jazzhátíðar hefur verið undanfarin ár og hvernig til hefur tekist. $line$Samþykkt að unnið verði áfram eftir þeim drögum sem kynnt voru.$line$
Málsnúmer 1501334
02
Þriðjudagsklassík 2015
Fyrstu tónleikarnir af fjórum í tónleikaröðinni Þriðjudagsklassík 2015 á vegum menningar- og safnanefndar voru haldnir þriðjudaginn 3. mars sl. Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari var með einleikstónleika í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. $line$Samkvæmt fyrirliggjandi dagskrá, sem lá frammi á fundinum, verða næstu tónleikar í tónleikaröðinni haldnir þriðjudaginn 7. apríl, þriðjudaginn 5. maí og þriðjudaginn 2. júní nk.$line$
Málsnúmer 1501342
03
Umsóknir um afnot af Bjarnastöðum
Áframhald umræðu frá síðasta fundi. Farið var yfir þær umsóknir félagasamtaka sem bárust um afnot að af húsnæði á Bjarnastöðum. $line$Samþykkt var að fela upplýsinga- og menningarfulltrúa að að semja umgengnisreglur fyrir húsið og ganga frá samkomulagi um afnot af húsnæðinu til fundarhalda og ýmissa viðburða við alla umsækjendur sem sóttu um. Gert skal ráð fyrir því að félögin geti fengið afnot af húsnæðinu frá 1. maí nk. $line$Upplýsinga- og menningarfulltrúa er jafnframt falið og skoða nánar hvort og þá hvaða úrbætur þarf að gera á húsnæðinu innandyra til að það nýtist sem best fyrir þá sem hafa af því afnot í framtíðinni. $line$
Málsnúmer 1501369
04
Menning og ferðaþjónusta
Fyrir fundinum lá bréf R3-ráðgjafar, dags. 15. janúar 2015, sem tekið var fyrir í bæjarráði 27. janúar sl. og vísað til umfjöllunar menningar- og safnanefndar. $line$Upplýsinga- og menningarfulltrúi ásamt forstöðumanni fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar áttu fund með fulltrúum ráðgjafarfyrirtækisins í lok febrúar þar sem farið var yfir hvernig fyrirtækið hefur aðstoðað sveitarfélög og opinbera aðila við stefnumótun og kortlagningu í menningar- og ferðamálum. $line$Samþykkt var að fela upplýsinga- og menningarfulltrúa að taka saman minnisblað til framlagningar á næsta fundi um möguleika á slíkri kortlagningu á menningarstöðum í Garðabæ með tilliti til útfærslu og kostnaðar.$line$
Málsnúmer 1501381
05
Opinn fundur menningar- og safnanefndar
Fyrir fundinum lá minnisblað upplýsinga- og menningarfulltrúa þar sem kynnt er hugmynd að fyrirkomulagi opins fundar menningar- og safnanefndar um menningarmál sem fyrirhugað er að halda síðar í marsmánuði. $line$Dagskrá fundarins var rædd og farið yfir hvernig fundurinn verði best kynntur íbúum, m.a. á vef Garðabæjar, í Garðapóstinum og með bréfi eða tölvupósti til félagasamtaka og fleiri aðila er tengjast listum og menningu í bænum.$line$Samþykkt að fela menningar- og upplýsingafulltrúa að boða til fundarins miðvikudaginn 25. mars nk. og annast undirbúning dagskrár í samræmi við umræður á fundinum.$line$
Málsnúmer 1501299
06
Minjagarður við Hofsstaði
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 10. febrúar 2015 að vísa til menningar- og safnanefndar framkominni tillögu varðandi eftirfylgni samþykktar bæjarstjórnar frá ársbyrjun 2001 varðandi minjagarðinn við Hofsstaði. $line$Fyrir fundinum lá minnisblað formanns og upplýsinga- og menningarfulltrúa eftir fund þeirra þann 25.02.2015 með fyrrum formanni menningar- og safnanefndar og Ragnheiði Traustadóttur fornleifafræðingi, sem hefur haft umsjón með fornleifarannsóknum á Hofsstöðum undanfarin ár, þar sem farið var yfir forsögu málsins og stöðu fornleifarannsókna á Hofsstöðum. Í minnisblaðinu eru settar fram hugmyndir um eflingu minjagarðsins á Hofsstöðum með hliðsjón af samþykkt bæjarstjórnar frá 2001. $line$Samþykkt var að fela upplýsinga- og menningarfulltrúa að vinna áfram að málinu og leggja fram á næsta fundi greinargerð þar sem fram komi nánari aðgerðaráætlun og greining kostnaðar við að efla minjagarðinn og tengja hann enn frekar við miðbæjarsvæði Garðabæjar, í anda framkominnar tillögu.$line$
Málsnúmer 1503131
07
Uppskeruhátíð menningar- og lista 2015
Stefnt er að því að halda uppskeruhátíð menningar og lista í Garðabæ 2015 í samkomuhúsinu á Garðaholti fimmtudaginn 28. maí nk. Dagskrá verður með svipuðu sniði og undanfarin ár þar sem m.a. er tilkynnt um val á bæjarlistamanni Garðabæjar 2015 og kynnt er úthlutun úr hvatningarsjóði ungra listamanna 2015. Rætt var um með hvaða hætti hægt er að gera listamenn í Garðabæ og starf þeirra sýnilegra. $line$Samþykkt að fela menningar- og upplýsingafulltrúa að annast undirbúning dagskrár uppskeruhátíðar menningar og lista 2015 í samræmi við umræður á fundinum.$line$
Málsnúmer 1503132
08
Bæjarlistamaður Garðabæjar 2015, auglýsing
Farið var yfir reglur um bæjarlistamann Garðabæjar og hvernig vali á bæjarlistamanni hefur verið háttað. Garðabær hefur frá árinu 1992 veitt starfsstyrki til listamanna og gerir menningar- og safnanefnd tillögur til bæjarstjórnar um úthlutun og koma aðeins til greina þeir listamenn sem búsettir eru í Garðabæ og hafa haft þar fasta búsetu í a.m.k. tólf mánuði. Að jafnaði hefur verið auglýst eftir ábendingum um bæjarlistamann í marsmánuði.$line$Samþykkt að fela upplýsinga- og menningarfulltrúa að auglýsa eftir ábendingum um bæjarlistamann Garðabæjar 2015. Farið verður yfir inn sendar ábendingar á næsta fundi menningar- og safnanefndar þann 8. maí nk.$line$
Málsnúmer 1411138
09
Styrkir til menningarmála 2015, auglýsing að vori
Menningar- og safnanefnd samþykkir að fela upplýsinga-og menningarfulltrúa að auglýsa eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á sviði lista og menningarmála í Garðabæ og hvetja íbúa til að koma hugmyndum sínum á framfæri við menningar- og safnanefnd. $line$Listamenn eða menningarviðburðir skulu tengjast Garðabæ. Í umsókn skal skilgreina verkefni og kostnaðaráætlun skal fylgja með. Tilgreina þarf ósk um styrkupphæð. Mælst er til að umsækjendur kynni afraksturinn fyrir menningar- og safnanefnd og/eða bæjarbúum.
Málsnúmer 1503130
10
Styrkbeiðni vegna tískusýningar nemenda á fata- og textílhönnunarbraut í FG
Lagt var fram bréf, dags. 02.02.2015, frá kennslustjóra á fata- og textílhönnunarbraut Fjölbrautaskólans í Garðabæ, f.h. nemenda, um styrk vegna lokasýningar nemenda. $line$Menningar- og safnanefnd samþykkir að veita fjárstyrk til verkefnisins að upphæð kr. 100.000 til að standa straum af kostnaði við sýninguna. Nefndin setur það skilyrði fyrir veitingu styrkjarins að sýningin verði auglýst opin öllum íbúum Garðabæjar.$line$
Málsnúmer 1503160
11
Söguganga bókasafnsins vor 2015
Bókasafn Garðabæjar hefur undanfarin ár, í samstarfi við menningar- og safnanefnd, boðið íbúum bæjarins upp á sögugöngu að vori. Fyrirhugað er að vera með næstu sögugöngu á vegum bókasafnsins laugardaginn 9. maí nk. Gengið verður um Garðaholt og sagt frá merkum minjum á því svæði auk þess sem komið verður við í bænum Króki.$line$Menningar- og safnanefnd fagnar þessu framtaki bókasafns bæjarins sem stuðlar að því að efla vitund og þekkingu almennings á sögufrægum stöðum í Garðabæ.$line$
Málsnúmer 1503060
12
Styrkbeiðni vegna ferðar leiklistarnema FG
Bréf Bjarna Snæbjörnssonar leiklistarkennara við Fjölbrautaskólann í Garðabæ, f.h. leiklistarnema, var tekið fyrir í bæjarráði Garðabæjar 10. mars 2015 og vísað til menningar- og safnanefndar. $line$Menningar- og safnanefnd tekur undir það sjónarmið, sem fram kemur í bréfi leiklistarkennarans, að leiklistarbrautin í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ hafi markað sér veigamikinn sess í list- og verknámi framhaldsskóla á Íslandi og vakið mikla athygli. $line$Samkvæmt fyrirliggjandi vinnureglum veitir menningar- og safnanefnd að jafnaði ekki ferðastyrki. Nefndin telur hins vegar mikilvægt að hlúð sé að leiklistarstarfsemi í bænum og felur því upplýsinga- og menningarfulltrúa að fylgja erindinu eftir með jákvæðri umsögn menningar- og safnanefndar til fræðslu- og menningarsviðs og bæjarstjóra.$line$
Málsnúmer 1503185
13
Sýning á verkum í eigu Garðabæjar
Lagt var fram bréf Grósku-samtökum myndlistarmanna og áhugafólks um myndlist í Garðabæ og á Álftanesi, dags. 11. mars 2015, þar sem kynntur er áhugi félagsmanna í Grósku á að fá að sýna verk í eigu Garðabæjar í Gróskusalnum. $line$Menningar- og safnanefnd tekur jákvætt í erindið og samþykkir að fela upplýsinga- og menningarfulltrúa að vinna nánar úr hugmyndinni í samráði við bæjarstjóra með það að leiðarljósi nefndin fái heimild bæjarstjórnar til þess að bjóða íbúum Garðabæjar upp á reglubundnar sýningar frá og með hausti 2015 á listaverkum í eigu bæjarins í samráði við Grósku í Gróskusalnum.$line$
Málsnúmer 1503186
14
Beiðni um stuðning við myndlistarsýningu að Haukanesi 12
Fyrir fundinum lá erindi Sigurðar Ingólfssonar, dags. 12. mars 2015, þar sem sótt er um fjárstyrk vegna myndlistarsýningar um miðjan næsta mánuð að Haukanesi 12. Samkvæmt erindinu mun sýningin standa í vikutíma og vera opin öllum íbúum Garðabæjar og öðrum áhugasömum listunnendum kl. 16-18 á virkum dögum og lengur um helgar. Sýnendur munu verða þrír myndlistarmenn sem eiga það sameiginlegt að hafa slitið barnsskónum í Garðabæ fyrir um 40 árum síðan. Sýningin verður auglýst með fréttatilkynningu í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum.$line$Menningar- og safnanefnd telur að boð íbúa Garðabæjar um opna myndlistarsýningu á heimili sínu hér í bænum eins og hér um ræðir sé áhugaverð nálgun við að koma myndlist á framfæri við bæjarbúa. Nefndin vísar málinu til upplýsinga- og menningarfulltrúa með heimild til þess að auglýsing og kynning á sýningunni fyrir íbúum Garðabæjar verði kostuð af nefndinni gegn því að sýningin sé opin öllum bæjarbúum og að auglýsing og kynning verði í nafni menningar- og safnanefndar Garðabæjar auk aðstandenda sýningarinnar.