Beint í efni

Beiðni um stuðning við myndlistarsýningu að Haukanesi 12

Málsnúmer 1503186

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

5. fundur

Fyrir fundinum lá erindi Sigurðar Ingólfssonar, dags. 12. mars 2015, þar sem sótt er um fjárstyrk vegna myndlistarsýningar um miðjan næsta mánuð að Haukanesi 12. Samkvæmt erindinu mun sýningin standa í vikutíma og vera opin öllum íbúum Garðabæjar og öðrum áhugasömum listunnendum kl. 16-18 á virkum dögum og lengur um helgar. Sýnendur munu verða þrír myndlistarmenn sem eiga það sameiginlegt að hafa slitið barnsskónum í Garðabæ fyrir um 40 árum síðan. Sýningin verður auglýst með fréttatilkynningu í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum.$line$Menningar- og safnanefnd telur að boð íbúa Garðabæjar um opna myndlistarsýningu á heimili sínu hér í bænum eins og hér um ræðir sé áhugaverð nálgun við að koma myndlist á framfæri við bæjarbúa. Nefndin vísar málinu til upplýsinga- og menningarfulltrúa með heimild til þess að auglýsing og kynning á sýningunni fyrir íbúum Garðabæjar verði kostuð af nefndinni gegn því að sýningin sé opin öllum bæjarbúum og að auglýsing og kynning verði í nafni menningar- og safnanefndar Garðabæjar auk aðstandenda sýningarinnar.