Beint í efni

Menning og ferðaþjónusta

Málsnúmer 1501369

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

5. fundur

Fyrir fundinum lá bréf R3-ráðgjafar, dags. 15. janúar 2015, sem tekið var fyrir í bæjarráði 27. janúar sl. og vísað til umfjöllunar menningar- og safnanefndar. $line$Upplýsinga- og menningarfulltrúi ásamt forstöðumanni fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar áttu fund með fulltrúum ráðgjafarfyrirtækisins í lok febrúar þar sem farið var yfir hvernig fyrirtækið hefur aðstoðað sveitarfélög og opinbera aðila við stefnumótun og kortlagningu í menningar- og ferðamálum. $line$Samþykkt var að fela upplýsinga- og menningarfulltrúa að taka saman minnisblað til framlagningar á næsta fundi um möguleika á slíkri kortlagningu á menningarstöðum í Garðabæ með tilliti til útfærslu og kostnaðar.$line$

Bæjarráð Garðabæjar

02

4 (1672). fundur

Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til umfjöllunar menningar- og safnanefndar.