4 (1672). fundur
4 (1672). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
27.01.2015
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón E. Friðriksson
Dagskrá
01
Bréf Skáksambands Íslands varðandi stuðning vegna Reykjavíkurskákmótsins 2015, mótt. 21.01.15.
Bæjarráð telur eigi unnt að verða við erindinu
02
Framlög til stjórnmálasamtaka 2015
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi skiptingu á greiðslu til stjórnmálasamtaka samkvæmt fjárhagsáætlun 2015.$line$$line$Framsóknarflokkur kr. 231.301$line$Sjálfstæðisflokkur kr. 2.058.576$line$Björt framtíð kr. 517.798$line$Samfylking kr. 346.951$line$Fólkið í bænum kr. 345.374$line$Samtals: kr. 3.500.000
03
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um örnefni, 403. mál, dags. 22.01.15.
Lagt fram.
04
Bréf umhverfisnefndar varðandi deiliskipulag í Heiðmörk, Sandahlíð, dags. 19.01.15.
Lagt fram.
05
Bréf umhverfisnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna Hliðs á Álftanesi, dags. 19.01.15.
Lagt fram.
06
Bréf Viðlagatryggingar varðandi mannvirki sem skylt er að vátryggja hjá Viðlagatryggingu Íslands, dags. 16.01.15.
Lagt fram.
07
Bréf R3 Ráðgjafar varðandi þátt menningar í ferðaþjónustu, dags. 15.01.15.
Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til umfjöllunar menningar- og safnanefndar.
08
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi samstarfssamning um sameiginlegar bakvaktir barnaverndar, dags. 21.01.15.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að samningur aðildarsveitarfélaga SSH varðandi samstarf um sameiginlegar bakvaktir barnaverndar verði framlengdur um tvö ár eða til 31. desember 2016.
09
Tillaga um breytingu á reglum um fjárhagsaðstoð.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
10
Umsókn um byggingarleyfi - Haukanes 15.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga á herbergjum og gluggastærðum á austurhlið hússins við Haukanes 15.
11
Umsókn um byggingarleyfi - Furulundur 6.
Bæjarráð samþykkir að vísa umsókn um byggingarleyfi vegna Furulundar 6 til meðferðar skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.
12
Minnisblað Strætó bs. varðandi akstursþjónustu fyrir fatlað fólk, dags. 13.01.15.
Lagt fram og rætt minnisblað Strætó bs. varðandi innleiðingu á akstursþjónustu fyrir fatlað fólk.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að vinna að endurskoðun gjaldskrár með það að markmiði að samræma gjaldskrár sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu vegna akstursþjónustu fatlaðs fólks.
13
Tillaga um styrk til starfsmanna Garðabæjar til að stunda heilsurækt á árinu 2015.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um íþróttastyrk til starfsmanna.$line$$line$?Starfsmenn Garðabæjar sem hafa starfað samfellt hjá bænum í fjóra mánuði og eru í 30% starfshlutfalli eða meira skulu eiga rétt á að kaupa árskort í sundlaugum Garðabæjar fyrir kr. 11.000.?
14
Bréf Urriðaholts um leyfi til landmótunar lóða í 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts, dags. 22.01.2015.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að hafnar verði jarðvegsframkvæmdir og landmótun á lóðum á deiliskipulagssvæði 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts og vísar í því sambandi til ákvæðis 3. mgr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 þar sem fram kemur heimild til að kanna jarðveg á framkvæmdasvæði án þess að byggingarleyfi hafi verið gefið út.
15
Bréf Ingunnar Þóru Hallsdóttur varðandi launalaust leyfi, dags. 23.01.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar fræðslu- og menningarsviðs.