Beint í efni

Bréf félagsmálastjóra varðandi tillögu að gjaldskrárbreytingu í ferðaþjónustu fatlaðs fólks, dags. 27.01.15.

Málsnúmer 1501050

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

5 (1673). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu um lækkun á gjaldskrá ferðþjónustu fatlaðs fólks í Garðabæ úr 340 kr./ferð í 175 kr./ferð.$line$$line$Bæjarráð ítrekar fyrri samþykkt um að gjaldskrá ferðaþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu verði endurskoðuð og samræmd fyrir allt svæðið.

Bæjarráð Garðabæjar

02

4 (1672). fundur

Lagt fram og rætt minnisblað Strætó bs. varðandi innleiðingu á akstursþjónustu fyrir fatlað fólk.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að vinna að endurskoðun gjaldskrár með það að markmiði að samræma gjaldskrár sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu vegna akstursþjónustu fatlaðs fólks.

Fjölskylduráð Garðabæjar

03

1. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1501050 - ferðaþjónusta fatlaðs fólks. Fjölskylduráð fjallar um þær breytingar sem orðið hafa á ferðaþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu. Ráðið harmar þá hnökra sem verið hafa á framkvæmd þjónustunnar og þau óþægindi sem það hefur valdið notendum. Starfsfólk Strætó og sveitarfélaganna kappkosta að bæta úr þessu.$line$Hafin er vinna við endurskoðun á reglum Garðabæjar um ferðaþjónustu fatlaðs fólks. Stefnt skal að því að þeirri vinnu verði lokið fyrir 1. apríl 2015.