Beint í efni

1. fundur

22.01.2015
Fjölskylduráð Garðabæjar

1. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

22.01.2015

Kl. 16:30 - 16:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sturla D Þorsteinsson - formaður
  • Sigþrúður Ármann - aðalmaður
  • Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
  • Harpa Guðný Hafberg - aðalmaður
  • Sigríður Finnbjörnsdóttir - varamaður
  • Anna Karin Juliussen - félagsráðgjafi
  • Guðrún Hrefna Sverrisdóttir - félagsráðgjafi

Ritari

  • Eva Ósk Ármannsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1411204

01

Umsókn um fjárhagsaðstoð nóvember

Tekið er fyrir mál nr. 1411204, umsókn um fjárhagsaðstoð. Fjölskylduráð fjallar um málið og bókar um það í trúnaðarmála-hluta fundargerðarinnar.

Málsnúmer 1411207

02

Fjárhagsaðstoð ágúst, sept og okt. 2014

Tekið er fyrir mál nr. 1411207, umsókn um fjárhagsaðstoð. Fjölskylduráð fjallar um málið og bókar um það í trúnaðarmála-hluta fundargerðarinnar.

Málsnúmer 1302243

03

Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum þann 4.desember 2014 tillögu að lýsingu gerðar Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 í samræmi við 1.mgr. 30.gr. Skipulagslaga nr 123/2010.$line$Í samræmi við 1.mgr. 30.gr. Skipulagslaga nr 123/2010 og gr. 4.2.4. í Skipulagsreglugerð nr.90/2013 er lýsingin nú kynnt almenningi og umsagnaraðilum. Er hún hér með sent nefndum bæjarins til kynningar. Frestur til að skila inn umsögnum eða ábendingum vegna lýsingarinnar er til 17.febrúar 2015. Senda skal umsagnir eða ábendingar til skipulagsstjóra Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.$line$Lýsingin er aðgengileg á heimasíðu Garðabæjar www.gardabaer.is og í þjónustuveri Garðabæjar að Garðatorgi 7.$line$Almennur kynningarfundur verður haldinn í Flataskóla miðvikudaginn 14. janúar og hefst hann klukkan 17.30. Þar verður lýsingin og innihald hennar kynnt almenningi.

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer 1407209

04

Úttekt á skipulagi félagslegrar heimaþjónustu og stefnumótun

Tekið er fyrir mál nr. 1407209, erindi bæjarráðs. Bæjarráð vísar til fjölskylduráðs að láta gera úttekt á skipulagi og fyrirkomulagi félagslegrar heimaþjónustu og marka stefnu til framtíðar með það að markmiði að auka gæði, val og fjölbreytni þjónustunnar fyrir notendur.$line$Fjölskylduráð fjallar um málið og felur fjölskyldusviði að taka saman greinargerð um fyrirkomulag og umfang félagslegrar heimaþjónustu. Jafnframt er tilnefndur starfshópur til að hefja vinnu við endurskoðun á reglum um félagslega heimaþjónustu í Garðabæ.

Málsnúmer 1412338

05

Tillaga um breytingu á reglum um fjárhagsaðstoð

Tekið er fyrir mál nr. 1412338, samþykkt bæjarstjórnar um endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð. Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar sem haldinn var 4. desember sl. var samþykkt að vísa eftirfarandi tillögu til nánari útfærslu fjölskyldusviðs. $line$"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að breyta útfærslu fjárhagsaðstoðar þannig að farin verði svokölluð leið B, sem öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu fara í stað leiðar A. Jafnframt verði upphæðir hækkaðar til samræmis við eins og gerist hjá nágrannasveitarfélögunum."$line$$line$Fjölskylduráð fjallar um málið og gerir eftirfarandi tillögu til bæjarráðs Garðabæjar:$line$$line$Í samræmi við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar 4. des. 2014 er lagt til að auk þess sem farin verði leið B í útfærslu fjárhagsaðstoðar þá verði grunnupphæð fjárhagsaðstoðar hækkuð um 5,3%. Með því verða upphæðir fjárhagsaðstoðar í Garðabæ færðar til meira samræmis við þau sveitarfélög sem næst okkur eru og er sú hækkun einnig nokkuð í takt við launaþróun sem styður einnig þessa nálgun. $line$Lagt er til að framfærslugrunnur sem tekur mið af útgjöldum vegna daglegs heimilishalds og miðist við grunnfjárhæð kr. 156.244.$line$Nauðsynlegt er að gera strax ákveðnar breytingar á reglum Garðabæjar um fjárhagsaðstoð í tengslum við þessar breytingar. $line$Lagðar eru til breytingar á 7., 10.,11. og 15. gr. sameinist 10. grein og falli niður. $line$Í 7. Gr. falli niður "... barnabætur, mæðra- og feðralaun og meðlög. Umönnunarbætur vegna barna skulu ekki reiknaðar sem tekjur. ... "$line$Í 11. Gr. falli niður "..meðlög, barnabætur og mæðra-/feðralaun... "$line$15. gr. falli niður þar sem hún hefur verið sameinuð 10. gr.$line$$line$10. gr. Upphæðir fjárhagsaðstoðar hljómi svo:$line$Framfærslugrunnur tekur mið af útgjöldum vegna daglegs heimilishalds og miðast við grunnfjárhæð 156.244.$line$Framfærslugrunnur einstaklinga 18 ára og eldri sem sannanlega reka eigið heimili er 1 og getur numið allt að 156.244. Með rekstri eigin heimilis er átt við þær aðstæður þegar viðkomandi býr í eigin húsnæði eða leigir húsnæði og leggur fram þinglýstan húsaleigusamning um húsnæðið.$line$Framfærslugrunnur fjárhagsaðstoðar til hjóna/sambúðarfólks er 1,6 og getur numið allt að kr. 249.990.$line$Framfærslugrunnur fjárhagsaðstoðar til einstaklings sem býr hjá foreldrum eða nánum ættingjum er 0.5 og getur numið allt að kr. 78.122. Hafi einstaklingur sem fellur undir framangreint forsjá barns skal framfærslugrunnur viðkomandi vera 0,8 og getur numið allt að kr. 124.995.$line$Framfærslugrunnur fjárhagsaðstoðar til einstaklings sem býr með öðrum, leigir húsnæði án þinglýsts húsaleigusamnings eða hefur ekki aðgang að húsnæði er 0.8 og getur numið allt að kr. 124.995.$line$Mat á fjárhagsaðstoð er óháð því hvort barn eða börn búa á heimilinu. Undantekning er þegar umsækjandi hefur skertar barnabætur en þá skal heimilt að taka tillit til skerðingarinnar við mat á fjárþörf. $line$Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar er tengd neysluvísitölu og skal breytt 1. janúar ár hvert í samræmi við hana. $line$$line$Jafnframt er lagt til að fjölskylduráði verið falið að hefja vinnu við heildarendurskoðun á reglum Garðabæjar um fjárhagsaðstoð og að þeirri vinnu verði lokið í sept. 2015.

Málsnúmer 1501050

06

Umsóknir og pantarnir - nýtt skráningarkerfi - ferðaþjónusta fatlaðra

Tekið er fyrir mál nr. 1501050 - ferðaþjónusta fatlaðs fólks. Fjölskylduráð fjallar um þær breytingar sem orðið hafa á ferðaþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu. Ráðið harmar þá hnökra sem verið hafa á framkvæmd þjónustunnar og þau óþægindi sem það hefur valdið notendum. Starfsfólk Strætó og sveitarfélaganna kappkosta að bæta úr þessu.$line$Hafin er vinna við endurskoðun á reglum Garðabæjar um ferðaþjónustu fatlaðs fólks. Stefnt skal að því að þeirri vinnu verði lokið fyrir 1. apríl 2015.