Tillaga um breytingu á reglum um fjárhagsaðstoð
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
2. fundur
Sturla Þorsteinson, gerði grein fyrir tillögu að breytingu á reglum um fjárhagsaðstoð og lagði fram eftirfarandi tillögu um ákvæði til bráðabirgða.$line$$line$"Í þeim tilvikum sem nýjar reglur um fjárhagsaðstoð leiða til þess að umsækjandi um fjárhagsaðstoð fær lægri styrk en hann hefði fengið samkvæmt eldri reglum skal við afgreiðslu málsins beita eldri reglum í allt að 3 mánuði frá gildistöku nýrra reglna. $line$Ákvæði þetta skal gilda um alla þá sem notið hafa fjárhagsaðstoðar samfellt í a.m.k. 3 mánuði fyrir gildistöku reglnanna."$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir tillögur að breytingu á reglum um fjárhagsstoð ásamt ákvæði til bráðabirgða.
Bæjarráð Garðabæjar
02
4 (1672). fundur
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fjölskylduráð Garðabæjar
03
1. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 1412338, samþykkt bæjarstjórnar um endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð. Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar sem haldinn var 4. desember sl. var samþykkt að vísa eftirfarandi tillögu til nánari útfærslu fjölskyldusviðs. $line$"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að breyta útfærslu fjárhagsaðstoðar þannig að farin verði svokölluð leið B, sem öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu fara í stað leiðar A. Jafnframt verði upphæðir hækkaðar til samræmis við eins og gerist hjá nágrannasveitarfélögunum."$line$$line$Fjölskylduráð fjallar um málið og gerir eftirfarandi tillögu til bæjarráðs Garðabæjar:$line$$line$Í samræmi við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar 4. des. 2014 er lagt til að auk þess sem farin verði leið B í útfærslu fjárhagsaðstoðar þá verði grunnupphæð fjárhagsaðstoðar hækkuð um 5,3%. Með því verða upphæðir fjárhagsaðstoðar í Garðabæ færðar til meira samræmis við þau sveitarfélög sem næst okkur eru og er sú hækkun einnig nokkuð í takt við launaþróun sem styður einnig þessa nálgun. $line$Lagt er til að framfærslugrunnur sem tekur mið af útgjöldum vegna daglegs heimilishalds og miðist við grunnfjárhæð kr. 156.244.$line$Nauðsynlegt er að gera strax ákveðnar breytingar á reglum Garðabæjar um fjárhagsaðstoð í tengslum við þessar breytingar. $line$Lagðar eru til breytingar á 7., 10.,11. og 15. gr. sameinist 10. grein og falli niður. $line$Í 7. Gr. falli niður "... barnabætur, mæðra- og feðralaun og meðlög. Umönnunarbætur vegna barna skulu ekki reiknaðar sem tekjur. ... "$line$Í 11. Gr. falli niður "..meðlög, barnabætur og mæðra-/feðralaun... "$line$15. gr. falli niður þar sem hún hefur verið sameinuð 10. gr.$line$$line$10. gr. Upphæðir fjárhagsaðstoðar hljómi svo:$line$Framfærslugrunnur tekur mið af útgjöldum vegna daglegs heimilishalds og miðast við grunnfjárhæð 156.244.$line$Framfærslugrunnur einstaklinga 18 ára og eldri sem sannanlega reka eigið heimili er 1 og getur numið allt að 156.244. Með rekstri eigin heimilis er átt við þær aðstæður þegar viðkomandi býr í eigin húsnæði eða leigir húsnæði og leggur fram þinglýstan húsaleigusamning um húsnæðið.$line$Framfærslugrunnur fjárhagsaðstoðar til hjóna/sambúðarfólks er 1,6 og getur numið allt að kr. 249.990.$line$Framfærslugrunnur fjárhagsaðstoðar til einstaklings sem býr hjá foreldrum eða nánum ættingjum er 0.5 og getur numið allt að kr. 78.122. Hafi einstaklingur sem fellur undir framangreint forsjá barns skal framfærslugrunnur viðkomandi vera 0,8 og getur numið allt að kr. 124.995.$line$Framfærslugrunnur fjárhagsaðstoðar til einstaklings sem býr með öðrum, leigir húsnæði án þinglýsts húsaleigusamnings eða hefur ekki aðgang að húsnæði er 0.8 og getur numið allt að kr. 124.995.$line$Mat á fjárhagsaðstoð er óháð því hvort barn eða börn búa á heimilinu. Undantekning er þegar umsækjandi hefur skertar barnabætur en þá skal heimilt að taka tillit til skerðingarinnar við mat á fjárþörf. $line$Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar er tengd neysluvísitölu og skal breytt 1. janúar ár hvert í samræmi við hana. $line$$line$Jafnframt er lagt til að fjölskylduráði verið falið að hefja vinnu við heildarendurskoðun á reglum Garðabæjar um fjárhagsaðstoð og að þeirri vinnu verði lokið í sept. 2015.