Beint í efni

2. fundur

05.02.2015
Bæjarstjórn Garðabæjar

2. fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli

05.02.2015

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sturla D Þorsteinsson - forseti bæjarstjórnar
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Einarsson - aðalmaður
  • Viktoría Jensdóttir - varamaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
  • Guðrún Arna Kristjánsdóttir - varamaður

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Fundurinn er hljóðritaður.

Dagskrá

Málsnúmer 1501019F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 20/1 ´15.

Til sérstakrar afgreiðslu:

Enginn kvaddi sér hljóðs.$line$$line$Fundargerðin sem er 19 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1501029F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 27/1 ´15.

Til sérstakrar afgreiðslu:

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 12. tl., minnisblað Strætó bs. varðandi akstursþjónustu fyrir fatlað fólk. Gunnar Valur gerði grein fyrir samþykkt á sameiginlegum fundi stjórnar Strætó og eigendavettvangs Strætó bs. um að skipa sérstaka neyðarstjórn til að taka að sér framkvæmd og stjórn verkefnisins.$line$$line$Guðrún Arna Kristjánsdóttir, ræddi 12. tl., minnisblað Strætó bs. varðandi akstursþjónustu fyrir fatlað fólk og þakkaði fyrir framkomnar upplýsingar um stöðu málsins.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 12. tl., minnisblað Strætó bs. varðandi akstursþjónustu fyrir fatlað fólk og gerði nánari grein fyrir skipan neyðarstjórnar og öðrum ákvörðunum á sameiginlegum fundi stjórnar Strætó og eigendavettvangs Strætó bs. í dag.$line$$line$Guðrún Elín Herbertsdóttir ræddi 8. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi samstarfssamning um bakvaktir og óskað eftir upplýsingum um fund bæjarstjóra með lögreglu varðandi sameiginlegar aðgerðir gegn heimilisofbeldi.$line$$line$Baldur Ó. Svavarsson, ræddi 5. tl., bréf umhverfisnefndar varðandi deiliskipulag í Heiðmörk og óskaði eftir upplýsingum um stöðu mála varðandi byggingu útilífsmiðstöðvar. Baldur lagði áherslu á gott samráð við skátanna varðandi endanlega staðsetningu byggingar útilífsmiðstöðvar.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 8. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi samstarfssamning um bakvaktir og gerði grein fyrir fundi með lögreglu varðandi sameiginlegar aðgerðir gegn heimilisofbeldi. Þá ræddi bæjarstjóri 5. tl., bréf umhverfisnefndar varðandi deiliskipulag í Heiðmörk og lýsti nánar samráði við forsvarsmenn skátanna um staðsetningu á byggingu útilífsmiðstöðvar.$line$$line$Fundargerðin sem er 15 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1501052F

03

Fundargerð bæjarráðs frá 3/2 ´15.

Til sérstakrar afgreiðslu:

Guðrún Arna Kristjánsdóttir, ræddi 1. tl., bréf Stjörnunnar varðandi starfsmannaaðstöðu og 2. tl., bréf Stjörnunnar varðandi endurnýjun vallarklukku.$line$$line$Sturla Þorsteinsson, ræddi 9. tl., tillögu að gjaldskrárbreytingu í ferðaþjónustu fatlaðs fólks og lagði fram eftirfarandi tillögu.$line$$line$"Bæjarstjórn samþykkir að breyting á gjaldskrá ferðaþjónustu fatlaðs fólks sem kveður á um lækkun á fargjaldi úr kr. 340 í kr. 175 gildi frá og með 1. janúar 2015."$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 1. tl., bréf Stjörnunnar varðandi starfsmannaaðstöðu og 2. tl., bréf Stjörnunnar varðandi endurnýjun vallarklukku.$line$$line$Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 7. tl., bréf Vegagerðarinnar til Skógræktarfélags Reykjavíkur varðandi eignarhald á Heiðmerkurvegi.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 7. tl., bréf Vegagerðarinnar til Skógræktarfélags Reykjavíkur varðandi eignarhald á Heiðmerkurvegi.$line$$line$Guðrún Arna Kristjánsdóttir, ræddi 14. tl., umsögn um umsókn vegna rekstrarleyfis til sölu gistingar í raðhúsi við Sandakur 12.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 14. tl., umsögn um umsókn vegna rekstrarleyfis til sölu gistingar í raðhúsi við Sandakur 12.$line$$line$Tillaga um gildistíma á breytingu á gjaldskrá ferðaþjónustu fatlaðs fólks samþykkt.$line$$line$Fundargerðin sem er 15 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1501021F

04

Fundargerð fjölskylduráðs frá 22/1 ´15.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1501007F

05

Fundargerð leikskólanefndar frá 22/1 ´15.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1412008F

06

Mannréttinda- og forvarnanefnd Garðabæjar - 5

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1501044F

07

Mannréttinda- og forvarnanefnd Garðabæjar - 6

Guðrún Arna Kristjánsdóttir, ræddi 3. tl., fjölmenningastefnu og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn um málið.$line$$line$Hvernig er þjónustu við fólk af erlendum uppruna háttað í Garðabæ? $line$Fær það einhverja aðstoð við að koma sér inní samfélagið og fær það túlkaþjónustu? $line$Hvernig er hún kynnt fyrir þeim? $line$Á heimasíðu Garðabæjar er einungis hægt að velja eitt annað tungumál (ensku) og þar eru upplýsingar af mjög skornum skammti. $line$Eru allir þeir sem eru af erlendum uppruna með ensku að móðurmáli? $line$Hvernig er haldið utan um börn í skólum sem eru af erlendum uppruna og hvernig gengur þeim að aðlagast? $line$Afar mikilvægt er að fólk af erlendum uppruna aðlagist nýju samfélagi sem fyrst og fái því allar upplýsingar um þá þjónustu sem þeim standi til boða. Og að lokum, hefur bærinn innflytjendastefnu?$line$Samfylkingin óskar eftir skriflegu svari við þessari fyrirspurn.$line$$line$Sturla Þorsteinsson, ræddi 3. tl., fjömenningastefnu.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1501026F

08

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 23/1 ´15.

Gunnar Valur Gíslason ræddi 3. tl., þriðjudagsklassík, 4. tl., jazzhátíð og 9. tl., opin fundur menningar- og safnanefndar.$line$$line$Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 6. tl., hundrað ára kosningarétt kvenna. $line$$line$Viktoría Jensdóttir, ræddi 2. tl., vetrarhátíð - safna- og sundlauganótt og hvatti fólk til að taka þátt í viðburðum í bænum í tengslum við hátíðina.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1501015F

09

Fundargerð skipulagsnefndar frá 15/1 ´15.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1501014F

10

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 22/1 ´15.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1501027F

11

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 27/1 ´15.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1412023F

12

Fundargerð umhverfisnefndar frá 14/1 ´15.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1501346

13

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 20/1 ´15.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi opnunartíma skíðasvæðanna og hvatti til lengri opnunartíma í vetrarfríum grunnkólanna.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1501297

14

Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 16/1 ´15.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1502027

15

Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 16/1, 23/1 og 30/1 ´15.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl., fg, 16/1 akstursútboð og 5. tl., fg. 30/1 aðgerðaráætlun vegna fjölgunar farþega.$line$$line$Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 8. tl., fg, 30/1 akstursþjónustu fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu og lagði fram eftirfarandi bókun:$line$$line$"Björt framtíð harmar þau alvarlegu atvik sem upp hafa komið í ferðaþjónustu fatlaðs fólks eftir að nýtt þjónustukerfi var tekið upp. Við ítrekum að nú er ekki tíminn til að deila og rífast, nú eigum við að eyða allri okkar orku í að leiðrétta þetta og finna hvernig við getum best komið til móts við þarfir fatlaðs fólks. Bæjaryfirvöld, við öll, berum ábyrgð og það er okkar að leggja þann tíma og það fé sem þarf til að gera þetta vel. Þó að við hættum við að kaupa lúxusbíla. Þarna er þörfin mest".$line$$line$Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 1412338

16

Tillaga um breytingu á reglum um fjárhagsaðstoð

Sturla Þorsteinson, gerði grein fyrir tillögu að breytingu á reglum um fjárhagsaðstoð og lagði fram eftirfarandi tillögu um ákvæði til bráðabirgða.$line$$line$"Í þeim tilvikum sem nýjar reglur um fjárhagsaðstoð leiða til þess að umsækjandi um fjárhagsaðstoð fær lægri styrk en hann hefði fengið samkvæmt eldri reglum skal við afgreiðslu málsins beita eldri reglum í allt að 3 mánuði frá gildistöku nýrra reglna. $line$Ákvæði þetta skal gilda um alla þá sem notið hafa fjárhagsaðstoðar samfellt í a.m.k. 3 mánuði fyrir gildistöku reglnanna."$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir tillögur að breytingu á reglum um fjárhagsstoð ásamt ákvæði til bráðabirgða.