Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 27/1 ´15.

Málsnúmer 1501029F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

2. fundur

Til sérstakrar afgreiðslu:

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 12. tl., minnisblað Strætó bs. varðandi akstursþjónustu fyrir fatlað fólk. Gunnar Valur gerði grein fyrir samþykkt á sameiginlegum fundi stjórnar Strætó og eigendavettvangs Strætó bs. um að skipa sérstaka neyðarstjórn til að taka að sér framkvæmd og stjórn verkefnisins.$line$$line$Guðrún Arna Kristjánsdóttir, ræddi 12. tl., minnisblað Strætó bs. varðandi akstursþjónustu fyrir fatlað fólk og þakkaði fyrir framkomnar upplýsingar um stöðu málsins.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 12. tl., minnisblað Strætó bs. varðandi akstursþjónustu fyrir fatlað fólk og gerði nánari grein fyrir skipan neyðarstjórnar og öðrum ákvörðunum á sameiginlegum fundi stjórnar Strætó og eigendavettvangs Strætó bs. í dag.$line$$line$Guðrún Elín Herbertsdóttir ræddi 8. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi samstarfssamning um bakvaktir og óskað eftir upplýsingum um fund bæjarstjóra með lögreglu varðandi sameiginlegar aðgerðir gegn heimilisofbeldi.$line$$line$Baldur Ó. Svavarsson, ræddi 5. tl., bréf umhverfisnefndar varðandi deiliskipulag í Heiðmörk og óskaði eftir upplýsingum um stöðu mála varðandi byggingu útilífsmiðstöðvar. Baldur lagði áherslu á gott samráð við skátanna varðandi endanlega staðsetningu byggingar útilífsmiðstöðvar.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 8. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi samstarfssamning um bakvaktir og gerði grein fyrir fundi með lögreglu varðandi sameiginlegar aðgerðir gegn heimilisofbeldi. Þá ræddi bæjarstjóri 5. tl., bréf umhverfisnefndar varðandi deiliskipulag í Heiðmörk og lýsti nánar samráði við forsvarsmenn skátanna um staðsetningu á byggingu útilífsmiðstöðvar.$line$$line$Fundargerðin sem er 15 tl. er samþykkt samhljóða.