Beint í efni

Úttekt á skipulagi félagslegrar heimaþjónustu og stefnumótun

Málsnúmer 1407209

Ferill máls

Fjölskylduráð Garðabæjar

01

4. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1407209 úttekt á skipulagi félagslegrar heimaþjónustu og stefnumótun. Herdís Hjörleifsdóttir, félagsráðgjafi situr fundinn undir þessum lið. Málið er rætt. Fyrir fundinum liggja drög að endurskoðuðum reglum um heimaþjónustu ásamt úttekt á núverandi skipulagi og fyrirkomulagi þjónustunnar. Verkefnið nú er að skoða mögulegar útfærslur á framkvæmd félagslegrar heimaþjónustu og marka stefnu til framtíðar þar um. Fjölskylduráð felur fjölskyldursviði að vinna áfram að málinu.

Fjölskylduráð Garðabæjar

02

3. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1407209 úttekt á skipulagi heimaþjónustu og stefnumótun. Herdís Hjörleifsdóttir, félagsráðgjafi, situr fundinn undir þessum lið. Einnig kemur á fundinn Ingibjörg Hjaltadóttir, hjúkrunarfræðingur frá Reykjavík og kynnir reynslu þeirra af notkun Rai-upphafsmats í heimaþjónustu. Umræður verða um matið og er Ingibjörgu þökkuð kynningin. Herdís gerir grein fyrir áframhaldandi vinnu við úttekt á skipulegi og endurskoðun á stefnumótun í heimaþjónustu.

Fjölskylduráð Garðabæjar

03

2. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1407209 - úttekt á skipulagi félagslegrar heimaþjónustu og stefnumótun. Herdís Hjörleifsdóttir, félagsráðgjafi, situr fundinn undir þessum lið.$line$Á fundi fjölskylduráðs 22.1. 2015 fól ráðið fjölskyldusviði að taka saman greinargerð um fyrirkomulag og umfang félagslegrar heimaþjónustu í Garðabæ. Jafnframt tilnefndi ráðið starfshóp til að hefja vinnu við endurskoðun á reglum um félagslega heimaþjónustu. Herdís Hjörleifsdóttir, félagsráðgjafi, leggur fram minnisblaðum fyrirkomulag og umfang félagslegrar heimaþjónustu en vinnu við minnisblað er ekki lokið. Starfshópur um endurskoðun á reglum um félagslega heimaþjónustu leggur fram drög að endurskoðuðum reglum um félagslega heimaþjónustu. $line$Minnisblað og endurskoðuðum reglum eru rædd. Vinnu verður haldið áfram og fjölskylduráð mun taka málið fyrir aftur á næsta fundi sínum.

Fjölskylduráð Garðabæjar

04

1. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1407209, erindi bæjarráðs. Bæjarráð vísar til fjölskylduráðs að láta gera úttekt á skipulagi og fyrirkomulagi félagslegrar heimaþjónustu og marka stefnu til framtíðar með það að markmiði að auka gæði, val og fjölbreytni þjónustunnar fyrir notendur.$line$Fjölskylduráð fjallar um málið og felur fjölskyldusviði að taka saman greinargerð um fyrirkomulag og umfang félagslegrar heimaþjónustu. Jafnframt er tilnefndur starfshópur til að hefja vinnu við endurskoðun á reglum um félagslega heimaþjónustu í Garðabæ.

Bæjarráð Garðabæjar

05

26. fundur

Bæjarráð samþykkir að framlengja samning við Sinnum ehf. um framkvæmd félagslegrar heimaþjónustu í Garðabæ til eins árs.$line$$line$Bæjarráð vísar til fjölskylduráðs að láta framkvæma úttekt á skipulagi og fyrirkomulagi félagslegra heimaþjónustu og marka stefnu til framtíðar með það að markmiði að auka gæði, val og fjölbreytni þjónustunnar fyrir notendur.