Beint í efni

2. fundur

12.03.2015
Fjölskylduráð Garðabæjar

2. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg

12.03.2015

Kl. 16:30 - 16:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sturla D Þorsteinsson - formaður
  • Sigþrúður Ármann - aðalmaður
  • Harpa Guðný Hafberg - aðalmaður
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Anna Karin Juliussen - félagsráðgjafi
  • Bryndís Björk Ásgeirsdóttir
  • Sigríður Finnbjörnsdóttir

Ritari

  • Bergljót Sigurbjörnsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1407209

01

Úttekt á skipulagi félagslegrar heimaþjónustu og stefnumótun

Tekið er fyrir mál nr. 1407209 - úttekt á skipulagi félagslegrar heimaþjónustu og stefnumótun. Herdís Hjörleifsdóttir, félagsráðgjafi, situr fundinn undir þessum lið.$line$Á fundi fjölskylduráðs 22.1. 2015 fól ráðið fjölskyldusviði að taka saman greinargerð um fyrirkomulag og umfang félagslegrar heimaþjónustu í Garðabæ. Jafnframt tilnefndi ráðið starfshóp til að hefja vinnu við endurskoðun á reglum um félagslega heimaþjónustu. Herdís Hjörleifsdóttir, félagsráðgjafi, leggur fram minnisblaðum fyrirkomulag og umfang félagslegrar heimaþjónustu en vinnu við minnisblað er ekki lokið. Starfshópur um endurskoðun á reglum um félagslega heimaþjónustu leggur fram drög að endurskoðuðum reglum um félagslega heimaþjónustu. $line$Minnisblað og endurskoðuðum reglum eru rædd. Vinnu verður haldið áfram og fjölskylduráð mun taka málið fyrir aftur á næsta fundi sínum.

Málsnúmer 1502036

02

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Tekið er fyrir mál nr. 1502036, umsókn um fjárhagsaðstoð. Fjölskylduráð fjallar um málið og bókar um það í trúnaðarmála-hluta fundargerðarinnar.

Málsnúmer 1502172

03

Umsókn um sérstakar húsaleigubætur

Tekið er fyrir mál nr. 1502172, umsókn um undanþágu frá reglum um sérstakar húsaleigubætur. Fjölskylduráð fjallar um málið og bókar um það í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.

Málsnúmer 1502255

04

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Tekið er fyrir mál nr. 1502255, umsókn um fjárhagsaðstoð. Fjölskylduráð fjallar um málið og bókar um það í trúnaðarmála-hluta fundargerðarinnar.

Málsnúmer 1501222

05

Stuðningsfjölskylda

Tekið er fyrir mál nr. 1501222, úttekt á stuðningsfjölskyldu. Fjölskylduráð fjallar um málið og bókar um það í trúnaðarmála-hluta fundargerðarinnar.

Málsnúmer 1501422

06

Þjónustukort fyrir eldri borgara

Tekið er fyrir mál nr. 1501422 - Þjónustukort fyrir eldri borgara. Bæjarráð Garðabæjar vísaði til umfjöllunar í fjölskylduráði tillögu Fólksins í bænum um að eldri borgurum verði boðið upp á sérstök þjónustukort og að þjónusta við eldri borgara verði efld og samræmd.$line$Fjölskylduráð fjallar um erindið. Fjölskylduráð tekur undir það að mikilvægt er að efla og samræma þjónustu við eldri borgara eftir því sem kostur er og leggur í því sambandi áherslu á að sem mest af þjónustu og upplýsingum um þjónustu við eldri borgara verði aðgengilegar í þjónustumiðstöð í Ísafold og í Jónshúsi.$line$Fjölskylduráð leggur til að tillaga um þjónustukort fyrir eldri borgara verði skoðuð samhliða endurskoðun á stefnu Garðabæjar í málefnum eldri borgara.

Málsnúmer 1501288

07

Íbúakönnun 2014

Tekið er fyrir mál nr. 1501288 - íbúakönnun 2014. Lögð er fram til kynningar könnun Capacent á ánægju íbúa með þjónustu Garðabæjar og annarra sveitarfélaga landsins ásamt samanburði milli sveitarfélaga og breytingum frá fyrri mælingum. Fjölskylduráð fer yfir helstu þætti könnunarinnar og ræðir.

Málsnúmer 1502143

08

Frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga 416. mál

Tekið er fyrir mál nr. 1502143 - frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.$line$Lagt fram og rætt.

Málsnúmer 1412101

09

Samstarf í málum er varða heimilisofbeldi

Tekið er til umræðu mál nr. 1412101 - Samstarf í málum er varða heimilisofbeldi. $line$Bæjarráð Garðabæjar hefur dags. 16.12.2014 vísað erindi frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu varðandi samstarf í málum er varða heimilisofbeldi til bæjarstjóra. Málið rætt.

Málsnúmer 1410196

10

Samstarfssamningur við Specialisterne á Íslandi

Tekið er fyrir mál nr. 1410196 - samstarfssamningur við Specialisterne á Íslandi. Specialisterne á Íslandi er sjálfseignarstofnun sem vinnur að því að hjálpa einstaklingum á einhverfurófinu til sjálfshjálpar og bjóða í því skyni upp á sérstakt mats- og þjálfunarferli. Specialisterne hafa óskað eftir samstarfssamningi við Garðabæ. Málið rætt. $line$Fjölskylduráð leggur til við bæjarráð að í stað samstarfssamnings með föstu framlagi geri Garðabær samninga við Specialisterne í tengslum við þá einstaklinga úr Garðabæ sem þar dvelja hverju sinni.

Málsnúmer 1502318

11

Framkvæmdaráætlun í barnaverndarmálum

Tekið fyrir mál nr. 1502318 - Framkvæmdaáætlun Garðabæjar á sviði barnaverndar kjörtímabilið 2014-2018. Farið yfir framkvæmdaáætlun tímabilsins 2010-2014 og ræddar hugsanlegar breytingar. Fjölskylduráðið mun taka málið fyrir aftur á næsta fundi sínum.