Samstarfsyfirlýsing um mál er varða heimilisofbeldi, dags. 15.05.2015.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
19. (1687). fundur
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti yfirlýsingu embættis lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og sveitarfélaganna Kópavogs Hafnarfjarðar og Garðabæjar um samstarf vegna mála er varða heimilisofbeldi.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
02
11 (1679). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu málsins og sagði frá viðræðum við bæjarstjóra Hafnarfjarðar og Kópavogs um samstarf í málinu.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
Fjölskylduráð Garðabæjar
03
2. fundur
Tekið er til umræðu mál nr. 1412101 - Samstarf í málum er varða heimilisofbeldi. $line$Bæjarráð Garðabæjar hefur dags. 16.12.2014 vísað erindi frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu varðandi samstarf í málum er varða heimilisofbeldi til bæjarstjóra. Málið rætt.
Bæjarráð Garðabæjar
04
48. fundur
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra og felur honum að ræða við fulltrúa lögreglunnar um kostnað og nánara verklag við framkvæmd verkefnisins$line$$line$Guðrún Elín Herbertsdóttir, lagði fram eftirfarandi bókun:$line$$line$"Björt framtíð fagnar framtaki LRH og samstarfi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í málum er varða heimilisofbeldi. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar, Kópavogs og Reykjavíkurborg hafa nú þegar samþykkt að vinna að hinu nýja verklagi með lögreglu. Ekkert hefur þó heyrst frá Garðabæ og hvetur Björt framtíð bæjaryfirvöld til að taka þátt í þessu þarfa átaki."