11 (1679). fundur
11 (1679). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
17.03.2015
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Arna Kristjánsdóttir - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
04
Bréf Félags eldri borgara varðandi styrk vegna ársins 2015, dags. 08.03.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2015.
05
Bréf Vektors varðandi tjón vegna mistaka við útsetningu hússins við Dalprýði 11, dags. 11.07.14
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við lóðarhafa um hugsanlega lausn málsins.$line$$line$Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra um gerð samkomulags um greiðslu að fjárhæð kr. 2.900.000.
06
Bréf innanríkisráðuneytisins varðandi kostnað við greiningu á rannsóknum vegna yfirfærslu á þjónustu við fatlað fólk til sveitarfélaga, dags. 04.3l.15.
Lagt fram.
07
Bréf Hestamannafélagsins Spretts varðandi framkvæmdaleyfi vegna tjarnar við Kjóavelli, ódags.
Í bréfinu er farið fram á leyfi til framkvæmda við settjörn vegna afvötnunar.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að verða við erindinu og felur bæjarverkfræðingi að hafa eftirlit með framkvæmdum.
08
Bréf GKG varðandi niðurfellingu á gatnagerðargjöldum, dags. 10.03.15.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að nýta heimild í 1. mgr. 6. gr. laga um gatnagerðagjöld að fella niður álögð gatnagerðargjöld að fjárhæð kr. 23.390.399 vegna byggingar félags- og íþróttaaðstöðu klúbbsins enda ljóst að ekki mun koma til kostnaðar við gatnagerð í tengslum við bygginguna.
09
Bréf Bjartrar framtíðar varðandi þátttöku í átaki LRH gegn heimildisofbeldi, dags. 12.03.15.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu málsins og sagði frá viðræðum við bæjarstjóra Hafnarfjarðar og Kópavogs um samstarf í málinu.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
10
Bréf Klúbbsins Geysi varðandi styrk, dags. 06.03.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2015.
11
Bréf Sinnum varðandi uppsögn samnings um leigu húsnæðis að Holtsbúð 87, dags. 28.02.15.
Lagt fram.
12
Bréf umhverfisnefndar varðandi lokur Bessastaðatjarnar, dags. 12.03.15.
Lagt fram.
13
Bréf umhverfisnefndar varðandi vöktunaráætlun Vífilsstaðavatns og Urriðavatns, dags. 12.03.15.
Bæjarráð tekur jákvætt í tillögur umhverfisnefndar um vöktunaráætlun Vífilsstaðavatns og Urriðavatns og vísar fjárveitingum vegna kostnaðar við vöktun til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016.
14
Bréf umhverfisnefndar varðandi fuglalíf í fjörum og tjörnum á Álftanesi, dags. 12.03.15.
Lagt fram.
15
Samgöngusamningur við Strætó bs, dags. 06.03.15.
Lagður fram samningur við Strætó bs. um samgöngustefnu fyrir starfsmenn Garðabæjar og útgáfu á samgöngukorti til starfsmanna.
16
Minnisblað leikskólafulltrúa varðandi mönnun á leikskólum Garðabæjar, dags. 09.03.15.
Í minnisblaðinu er gerð grein fyrir hugmyndum um bætt starf leikskólanna í Garðabæ m.t.t. mönnunar og styrkingar á menntun starfsfólks.$line$$line$Bæjarráð tekur undir tillögur um að styrkja starfsemi skólanna með tilliti til núverandi mönnunar og felur fræðslu- og menningarsviði nánari útfærslu málsins. Þá samþykkir bæjarráð að málið verði tekið upp að nýju við undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016 og reynsla af aðgerðum metin með tilliti til endurskoðunar varðandi mönnun á leikskólum.
17
Auglýsing útboð vegna gatnaframkvæmda í 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarverkfræðings um að auglýsa útboð vegna framkvæmda við gatnagerð í 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
18
Bréf Heiðrúnar Hauksdóttur og M. Carolina Castillo varðandi frárennslislagnir við Krókamýri 16 og 18, dags. 11.03.15.
Bæjarráð vísar bréfinu nánari skoðunar bæjarstjóra og tækni- og umhverfissviðs
19
Aðsókn í sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu.
Lagt fram yfirlit yfir aðsókn í sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu á árinu 2014 og samanburð við árin 2012 og 2013.
20
Endurskoðun samstarfsamnings um rekstur Hönnunarsafns Íslands.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála varðandi viðræður við mennta- og menningarmálaráðuneytið um endurskoðun samnings um rekstur safnsins.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ræða við mennta- og menningarmálaráðherra um endurskoðun samningsins og greiðslu stofnframlags til safnsins.