Niðurfelling gatnagerðargjalda
Málsnúmer 1503143
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
5. fundur
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu bæjarráðs um að fella niður álögð gatnagerðargjöld að fjárhæð kr. 23.390.399 vegna byggingar félags- og íþróttaaðstöðu Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar enda ljóst að ekki mun koma til kostnaðar við gatnagerð í tengslum við bygginguna. María Grétarsdóttir situr hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
02
11 (1679). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að nýta heimild í 1. mgr. 6. gr. laga um gatnagerðagjöld að fella niður álögð gatnagerðargjöld að fjárhæð kr. 23.390.399 vegna byggingar félags- og íþróttaaðstöðu klúbbsins enda ljóst að ekki mun koma til kostnaðar við gatnagerð í tengslum við bygginguna.