Beint í efni

5. fundur

19.03.2015
Bæjarstjórn Garðabæjar

5. fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli

19.03.2015

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sturla D Þorsteinsson - forseti bæjarstjórnar
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Einarsson - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Viktoría Jensdóttir - varamaður
  • Guðrún Arna Kristjánsdóttir - varamaður

Ritari

  • Guðjón E. Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 1503009F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 10/3 ´15.

Til sérstakrar afgreiðslu:

Halldór Jörgensson, ræddi 1. tl., bréf UMF Stjörnunnar varðandi áframhaldandi uppbyggingu íþróttamannvirkja og íbúafund í gær um staðarval fjölnota íþróttahúss. Halldór lagði fram eftirfarandi tillögu.$line$$line$"Björt Framtíð leggur til að farið verði í ítarlega þarfa- og kostnaðargreiningu á byggingu íþróttamannvirkis sem ýmist gengur undir nafninu "knatthús" eða "fjölnota íþróttahús"."$line$$line$Greinargerð $line$Gerð hefur verið ágæt skýrsla um staðarval á fjölnotahúsi án þess að ítarleg greining og umræða hefur farið fram á þörf, byggingarkostnaði og rekstrarkostnaði. Á ágætum íbúafundi um málið þann 18. mars komu ýmsar raddir í ljós sem sýna að samstaða um byggingu slíks hús er ekki næg innan bæjarfélagsins. Ýmist er rætt um knatthús eða fjölnotahús án þess að skilgreina nægjanlega vel hvaða starfsemi slíkt hús eigi að þjóna eða hvaða viðbótar nýtingarmöguleikar eigi að vinnast af byggingu hússins ef einhverjir. Bygging sem þessi telst varla til skylduverkefna sveitarfélaga og Björt Framtíð leggur því áherslu á að íbúar Garðabæjar fái nægjanlegar upplýsingar til að meta kosti og galla við þá möguleika sem eru í boði ásamt kostnaði við byggingu og árlegum kostnaði sem kann að leggjast á íbúa vegna reksturs slíks mannvirkis. Leita mætti til sveitarfélaga sem þegar hafa farið í slíka framkvæmd til að afla frekari upplýsinga um kostnað, ávinning og nýtingu. Nægjanlegar upplýsingar og umræða gefur bæjarbúum kost á að meta hvort skynsamlegt sé að ráðast í framkvæmdina og þannig að taka upplýsta, skynsamlega ákvörðun, byggða á rökum, um byggingu eður ei.$line$$line$Gunnar Valur Gíslason, ræddi 15. tl., lokaskýrslu sérstakrar stjórnar um ferðaþjónustu fatlaðs fólks og sagði frá að framkvæmdaráð sem skipað hafi verið í framhaldi af vinnu sérstakrar stjórnar hafi tekið til starfa.$line$$line$María Grétarsdóttir, ræddi 1. tl., bréf UMF-Stjörnunnar varðandi áframhaldandi uppbyggingu íþróttamannvirkja og íbúafund í gær um staðarval fjölnota íþróttahúss.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 1. tl., bréf UMF-Stjörnunnar varðandi áframhaldandi uppbyggingu íþróttamannvirkja og íbúafund í gær um staðarval fjölnota íþróttahúss: Þá ræddi bæjarstjóri framkomna tillögu og lagði til að henni verði vísað til bæjarráðs.$line$$line$Halldór Jörgensson, ræddi að nýju framkomna tillögu.$line$$line$Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., bréf UMF-Stjörnunnar varðandi áframhaldandi uppbyggingu íþróttamannvirkja og íbúafund í gær um staðarval fjölnota íþróttahúss.$line$$line$María Grétarsdóttir ræddi 1. tl., að nýju.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 1. tl., að nýju$line$$line$Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi bréf UMF-Stjörnunnar varðandi áframhaldandi uppbyggingu íþróttamannvirkja og íbúafund í gær um staðarval fjölnota íþróttahúss.$line$$line$María Grétarsdóttir ræddi 1. tl., að nýju.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.$line$$line$Fundargerðin sem er 16 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1503020F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 17/3 ´15.

Fundargerðin sem er 20 tl. er samþykkt samhljóða

Málsnúmer 1503013F

03

Fundargerð fjölskylduráðs frá 12/3 ´15.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1503015F

04

Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 11/3 ´15.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1503016F

05

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 13/3 ´15.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 5. tl., opinn fund menningar- og safnanefndar, 6. tl., minjagarð við Hofsstaði og 13. tl., tillögu Grósku um að halda sýningu á verkum í eigu Garðabæjar.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1503006F

06

Fundargerð umhverfisnefndar frá 11/3 ´15.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., skýrslu um fuglalíf á Álftanesi og sagði frá fundi sem fyrirhugaður er um miðjan apríl að Bjarnastöðum þar sem skýrslan verður nánar kynnt og rædd. Jóna ræddi einnig 3. tl., vöktunaráætlun Vífilsstaðavatns og Urriðavatns, 4. tl., lokur við Bessastaðatjörn og umhverfi á Bessastaðanesi, 5. tl. fræðsluefni um trjágróður og 9. tl., hreinsunarátak 2015.$line$$line$Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 4. tl., lokur við Bessastaðatjörn og umhverfi á Bessastaðanesi.$line$$line$Sigurður Guðmundsson, ræddi 9. tl., hreinsunarátak 2015 og hvatti til að virkja bæjarbúa með reglubundnum hætti til að hreinsa rusl í sínu næsta nágrenni. Þá ræddi Sigurður ástand vega og stíga og benti á í því sambandi að huga þurfi að nauðsynlegu viðhaldi eftir harðan og erfiðan vetur.$line$ $line$Jóna Sæmundsóttir, ræddi að nýju 9. tl. hreinsunarátak 2015 og sagði nánar frá undirbúningi og framkvæmd þess og kom fram að send verður tilkynning í öll hús með hvatningu til bæjarbúa um þátttöku í átakinu.$line$$line$María Grétarsdóttir, 9. tl., hreinsunarátak og lagði áherslu á hreinsun stíga og gangstétta.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1501328

07

Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 28/1 ´15.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1503138

08

Fundargerðir stjórnar SSH frá 12/1, 9/2, 2/3 og 6/3 ´15.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 1501125

09

Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 4/3 ´15.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi málefni Sorpu bs. og sagði fram málþingi um úrgangmál sem haldið var í dag á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1502027

10

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 13/3 ´15.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 8. tl., akstursútboð.$line$$line$María Gísladóttir, ræddi 2. tl., vinnustaðagreining og óskaði eftir nánari upplýsingum um málið.$line$$line$Gunnar Valur Gíslason, ræddi sama mál og svaraði framkominni fyrirspurn.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1501346

11

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 3/3 ´15.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1503137

12

Fundargerðir svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 6/1 og 27/2 ´15.

Sigurður Guðmundsson kvaddi sér hljóðs í tilefni af fg frá 27. febr. sl. og vakti athygli á forföllum nefndarmanna á fundinum. Sigurður taldi ástæðu til að beina því til SSH að tilnefndir verði varamenn í nefndina.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1502272

13

Kosning varamanns í fjölskylduráð.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, gerði gerði grein fyrir tillögu Bjartrar framtíðar um að tilnefa Guðrúnu Sesselju Arnardóttur, Súlunesi 9 sem varamann í fjölskylduráð í stað Freyju Haraldsdóttur sem dvelur nú erlendis.$line$$line$Tillagan samþykkt.

Málsnúmer 1403558

14

Tillaga um verndarsvæði vatnsbóla innan lögsagnarumdæma Mosfellsbæjar, Reykjavíkurborgar, Seltjarnarnesbæjar, Kópavogsbæjar, Garðabæjar og Hafnarfjarðarkaupstaðar.

Fyrir liggur jákvæð umsögn heilbrigðisnefndar um málið, sbr. fundargerð nefndarinnar frá 19. febrúar sl.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti tillögu um verndarsvæði vatnsbóla innan lögsagnarumdæma Mosfellsbæjar, Reykjavíkurborgar, Seltjarnarnesbæjar, Kópavogsbæjar, Garðabæjar og Hafnarfjarðarkaupstaðar ásamt tillögu að uppdrætti af afmörkun verndarsvæðisins.